Nóv. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Valkostur ein sannkölluð rassbaga
7.3.2014 | 08:59
Gaman væri ef sú venja lifði að segja frekar: Hann hefur unnið hug og hjarta allra en hugi og hjörtu, svo og: Þau hristu höfuðið en hristu höfuðin. Og af tvennu illu er betra að við séum með hjartað í buxunum en hjörtun í buxunum.
Hin þriggja lína ábending í dálki sem nefnist Málið í Morgunblaðinu kemur er lærdómsrík og oft afar skemmtileg eins og ofangreint ber með sér.
Mogginn mætti skikka blaðamenn sína til að lesa þennan dálk. Sá frétt með þessari fyrirsögn Valkostir verða kynntir í mars. Þar er viðtal við Rögnu Árnadóttur, formann nefndar um framtíðarlegu flugvallar á höfuðborgarsvæðinu.
Orðskrípið valkostur er það sem sagt var í mínu ungdæmi, fyrir örfáum árum, rassbaga, og þótti ekki fínt. Það er samsett úr tveimur orðum sem bæði þýða nokkurn veginn hið sama. Einhvern veginn er svo mörgum fyrirmunað að segja einfaldlega Kostirnir verða kynntir í mars, ... eða tillögur eða hugmyndir eða bara eitthvað annað sem er ekki baga út úr rassi.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 8.3.2014 kl. 16:36 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 57
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 52
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þörf hugvekja Sigurður. En Morgunblaðið mætti að ósekju birta þennan dálk um íslenzkt mál á mbl.is og fylgja þannig fordæmi Vikudags á Akureyri, en þar hefur Tryggvi Gíslason, fyrrverandi skólameistari MA, skrifað fasta pistla um íslenzkt mál í á þriðja ár. Rassbögurnar eiga það til að festast í málinu ef þær eru endurteknar nógu oft.
Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 7.3.2014 kl. 10:15
Sammála, Jóhannes. Vissi ekki af pistlum þess ágæta manns, Tryggva Gíslasonar. Ætla að kynna mér þá.
S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 7.3.2014 kl. 10:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.