Hverjum skal trúa, Össuri eða Evrópusambandinu?

Þetta var frábær fundur með þessum tveimur sérfræðingum sem komu í dag,“ sagði Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingar og fyrrverandi utanríkisráðherra, í gærkvöldi. „Að mínu viti er öllum efasemdum eytt hvað varðar það að sérlausn er fær samkvæmt Evrópuréttinum, svo fremi sem hún er vel skilgreind og útfærð.

Þetta segir Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi utanríkisráðherra í ríkisstjórninni sem sótti um aðild að Evrópusambandinu án þess að spyrja þjóðina. Maðurinn sem vill bera það undir þjóðina hvort draga eigi umsóknina til baka. Tilvitnunin er úr viðtali á mbl.is í dag.

 

  • Viðræður við ESB nefnast aðlögunarviðræður, þær eru ekki samningaviðræður, heldur nær því að vera yfirheyrsla sambandsins yfir umsóknarríkinu um hvernig það hefur unnið að því að taka upp lög og reglur ESB í löggjöf sína. 
  • Reglur Evrópusambandsins kveða svo á að ekki sé hægt að gefa umsóknarríki varanlegar undanþágur í aðlögunarviðræðum. 
  • Stækkunarstjóri Evrópusambandsins, Stefan Fühle, hefur látið svo ummælt að engar undanþágur séu veittar frá hinum 35 köflum og 100.000 blaðsíðna lögum og reglum ESB.
  • Síðan ESB breytti reglum um umsókn hefur ekkert ríki fengið aðild og varanlega undanþágu af neinu því tagi sem máli skiptir í aðlögunarviðræðum. 
  • Sérlausnir er hugtak sem ekki er notað í aðlögunarviðræðum.
  • Löggjafarþing allra 27 aðildarríkja ESB þurfa að samþykkja inngöngu ríkis í sambandið. Nærri má geta að þau munu aldrei samþykkja eitthvað sem þeim hefur ekki sjálfum staðið til boða, í aðlögunarferli eða síðar.

 

Þrátt fyrir þetta er Össur ofurbjartsýnn og heldur að Ísland fái undanþágur frá stjórnarskrá ESB. Og enn þann dag í dag heldur hann því fram að viðræður umsóknarríkis og ESB séu samningaviðræður. Enginn hefur borið það upp á Össur að hann skrökvi, jafnvel þó hann geri það blygðunarlaust.

Hverjum skal nú trúa, Össuri eða ummælum embættismanna ESB og reglum sambandsins?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Hann er orðinn tragikómiskur kallinn. Maður er eiginlega farinn að aumkast yfir hann.

Jón Steinar Ragnarsson, 5.3.2014 kl. 09:35

2 Smámynd: Ívar Pálsson

Næst á Stefan Fule bara eftir að segja við Össur: „I'll have what you are having, it must be good!“

Ívar Pálsson, 5.3.2014 kl. 09:37

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég er ekki í neinum vafa um hvorum ég trúi.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.3.2014 kl. 11:24

4 Smámynd: rhansen

það er ekki spurning ..

rhansen, 5.3.2014 kl. 16:13

5 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Fer ekki ad vanta einhvern til ad fylgjast med urridanum a Thingvollum, eda er bedid eftir undanthagu med thad lika fra ESB?

Össur er eiginlega buinn med bullkvotann sinn og aetti ad snua ser ad thvi sem hann er virkilega godur i. sem er ad fylgjast med fiskum. Thad ma lengi bulla i theim an nokkurs skada, en tjodin er hins vegar buin ad fa nog i bili, held eg, af ESB arattu Össurar og fylgifiska hans.

Halldór Egill Guðnason, 5.3.2014 kl. 17:30

6 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Það á ekki að vorkenna össuri með litlum staf. Hann er búin að kosta þjóðinni mikinn skaða bæði andlega og ómældan kosnað.

Ég við að hann standi fyrir sínu máli ásamt Samfylkingunni og fylgiflokkum sem reyndu að halda áfram með lygar. Þorgerði á að reka úr sjálfstæðisflokknum en hún og hennar líkir hafa ekkert þar að gera. Já dóm á þetta fólk.

Valdimar Samúelsson, 5.3.2014 kl. 19:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband