Vitleysisgangurinn í Þór Saari

Ég hlustaði á ræðu Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, vegna vantraustsins í morgun. Ég var nú dálítið sammála henni, sérstaklega þar sem hún talaði um vitleysisganginn í Þór Saari þegar hann leggur fram tillögu um vantraust á ríkisstjórninni.

Vantraustið er þvílík vitleysa á þessari stundu að ekki tekur nokkru tali. Hún er ekkert annað en hefnd Hreyfingarinnar sem fékk ekki það úr hrossakaupum við ríkisstjórnina sem hún vænti.

Að öðru leyti á ríkisstjórnin ekkert gott skilið, hún er löngu fallin, veit það ekki, en skapadægur hennar ráðast þann 27. apríl næstkomandi. 

Hins vegar myndi ég greiða atkvæði með vantraustinu sæti ég á Alþingi, en á allt öðrum forsendum en Þór. 


mbl.is „Heimskulegt feigðarflan“ Þórs Saari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: corvus corax

Ríkisstjórnin keypti stuðning Hreyfingarinnar en svíkur síðan hana síðan um greiðsluna. Samningar og hrossakaup eru aðalsmerki stjórnmálanna hér á landi svo það er ekkert skrítið að menn leiti hefnda þegar slíkt samkomulag er svikið ofan á öll kosningaloforðasvikin.

corvus corax, 11.3.2013 kl. 13:11

2 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Rétt hjá þér, krummi. Hins vegar er þetta með hefndina dálítið séríslenskt. Afar neikvætt að þurfa alltaf að hefna fyrir eitthvað. Skamma stund verður hönd höggi fegin.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 11.3.2013 kl. 13:29

3 Smámynd: Samstaða þjóðar

Sumir segja að »sama sé hvaðan gott kemur« en ég tek raunar ekki undir það sem algilda reglu. Við núverandi aðstæður er hins vegar gott að fá tillögu Þórs um vantraust á ríkisstjórnni.

 

Vörn ríkisstjórnarinnar er aumkunarverð, en segja má að »oft ratast kjöftugum satt orð á munn« þegar Jóhanna Sigurðardóttir sagði:

 

"Það verður enginn flokkur skikkaður í ríkisstjórn hvað sem líður samþykktum meiri hluta þings og auðvitað yrði það forseta Íslands að meta hvort og þá hvernig staðið yrði að skipan ríkisstjórnar í framhaldinu ef vantraust á sitjandi ríkisstjórn yrði samþykkt í dag. Það verður líka fróðlegt að sjá hvort þingmenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks greiði tillögunni atkvæði sitt í ljósi efnisatriða og greinargerðar hennar."

 

Það er auðvitað ekki Alþingis að segja til um hverjir skipa ríkisstjórn, heldur er það verkefni forseta Lýðveldisins. Getur verið að einhver hafi lesið Stjórnarskrána fyrir Jóhönnu ? Verið getur að forsetinn taki mark á vantrausi á ríkisstjórnina og það skulum við vona, ef vantraust verður samþykkt.

 

Loftur Altice Þorsteinsson.

 

 

Samstaða þjóðar, 11.3.2013 kl. 14:23

4 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Samála þér, Loftur.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 11.3.2013 kl. 14:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband