Sá hljóp á sig
7.9.2012 | 10:37
Í leiðara Morgunblaðsins er rætt um birtingu skattaupplýsinga. Höfundur hefur einstakt lag á því að setja hluti í samhengi en eins og kunnugt er skiptir það öllu máli. Ein einstök vitneskja segir oft ekki mikið fyrr en aðrar upplýsingar tengjast. Þetta kann leiðarahöfundur. Hann segir:
Eftir stendur þá að með birtingunni er verið að greiða fyrir útrás venjulegrar hnýsni um einkahagi manna, og auðvelda birtingu hennar í hagnaðarskyni. Í flestum fyrirtækjum landsins er litið svo á að samningar þeirra og einstakra launþega séu trúnaðarmál sem verði ekki upplýst nema báðir aðilar samþykki. Auðvitað gildir annað að lögum um þá sem lúta ákvörðunum opinberra kjararáða, enda má oftast auðveldlega lesa um þær á viðkomandi vef.
Ef framhjá því kerfi er farið eru stundum til aðrar leiðir, svo sem eins og ef einn ráðherra lekur upplýsingum um skrítnar ákvarðanir annars. Því víðar er rotið en í ríki Dana. Aukin hætta er á slíkum lekum ef formannsslagur er í farvatninu. Það hefði Guðbjartur átt að hafa hugfast áður en hann hljóp á sig nú síðast.
Og þá glotti ég.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.