Óþolandi ...

Eftir þriggja ára aðlögunarviðræður við Evrópusambandið tjáir Steingrímur J. Sigfússon, allsherjarráðherra, sig loksins um þær. Og það er helst í fréttum að honum finnst „óþolandi“ að ekki sé búið að ganga frá aðildinni fyrir næstu þingkosningar. Honum finnst „óþolandi“ að fara í kosningar með aðlögunarviðræðurnar í fullum gangi.

Ríkisstjórninni og meirihluta hennar á þingi hefur tekist að klúðra hverju málinu á fætur öðru og sleppt því að taka á þeim sem almenningur telur mikilvægast; atvinnumálu, skuldastöðu heimilanna, uppbyggingu atvinnulífsins og framfærslumálum. Auðvitað skipta þessi mál mestu. Engin önnur eru mikilvægari, hvorki stjórnarskráin eða kvótamálið þó ríkisstjórnin reyni að villa um fyrir almenningi og beina sjónum fólks frá öllu klúðrinu.


mbl.is Þrýstir á ESB að opna lykilkaflana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Sæll nafni, samála þetta er óþolandi og um leið alveg ólíðandi að hann og Jóhanna skuli enn vera við völd miðað við frammistöðu fyrri áratuga!

Sigurður Haraldsson, 10.4.2012 kl. 09:34

2 Smámynd: Eggert Guðmundsson

Ef einhver dugur væri  í Steingrími J, þá slítur hann viðræðunum strax.

En það er borin von.

Eggert Guðmundsson, 10.4.2012 kl. 21:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband