Hann er hetja

Ég hlustaði á viðtalið við Eirík Inga Jóhannsson og gerði mér enga grein fyrir því hversu langt það var fyrr en að því loknu. Áttatíu mínútna, nærri því heil bíómynd, og hann var allan tímann einn í mynd og hélt athygli áhorfenda.

Þetta var einstök og átakanleg frásögn manns sem upplifði hrikalegar hörmungar, sinnti störfum sínum af æðruleysi og dugnaði, tapaði af samstarfsmönnum sínu og vinum í hafið svo að segja fyrir augunum á honum, lenti sjálfur í sjónum en bjargaðist fyrir dugnað og skynsemi.

Ekki eru allir svo opnir sem lent hafa í mannraunum. Fólk er mismunandi.

Eiríkur tekur ósjálfrátt til þess bragðs að tala sig út úr sálrænu áfalli sem hann hefur auðsjáanlega orðið fyrir. Hann mun því komast út úr erfiðleikunum en sorgin vegna fráfalls vina mun alla tíð vera með honum. Þannig er það bara.

Rík ástæða er til að þakka Eiríki fyrir söguna af ótrúlegum aðstæðum og óska honum góðs gengis í allri framtíð. Hann er hetja.


mbl.is Aðdáunarverður lífsvilji
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband