Tvær skýringar og báðar slæmar

Skýring Gylfa Magnússonar efnahags- og viðskiptaráðherra er líklega annað af tvennu:

 

  • Hann vissi um álit Seðlabanka Íslands um gengistryggð lán, sagði ekki frá álitinu, hélt því leyndu fyrir Alþingi og með því tafði hann þróun stjórnmálaumræðunnar í þrettán mánuði og hefur eflaust bakað ríkissjóði skaðabótaskyldu.
  • Hann vissi ekki af áliti Seðlabankans, vissi ekki af störfum lögfræðinga ráðuneytisins, vissi ekki það sem ráðuneytisstjórninn vissi alla tíða. Fyrir vikið má draga í efa stjórnunarhæfni hansef starfsfólk hans upplýsir hann ekki um svo gríðarlega mikilvægt mál.

 

Hvort tveggja er alvarlegt mál og bæði mikil ávirðing á þann mann sem krafðist í búsáhaldabyltingunni að allt skyldi vera uppi á borðum, engin leyndarhyggja. 

Hvað hefur komið fyrir Gylfa? Gekk hann í sömu björg og Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon? 


mbl.is Bjarni: „Staða Gylfa í uppnámi"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Merkilegt, en er ég hlustaði á viðtalið við þennan mann, sem ég hef reyndar aldrei treyst, snérist hausinn á mér eins og ég væri í höfuð beina og spjald og svo small í og ég sagði við sjálfan mig: " Hann er kominn í sömu björg og allir hinir."

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 12.8.2010 kl. 17:58

2 Smámynd: Jón Magnússon

Var hann ekki alltaf í Samfylkingarbjörgunum eins og svo margir svonefndir "óháðir"fræðimenn í Háskólunum. Hvað sem því líður þá er það til vansa fyrir stjórnarandstöðuna að gera ekki nú þegar kröfu um að ráðherrann víki. Þingmenn Hreyfingarinnar hafa þegar gert það. En Samfylkingin ætlar að slá skjaldborg um Gylfa Magnússon. Það er eina skjaldborgin sem þeir munu slá upp á þessu kjörtímabili.

Var einhver að tala um að Samfylkingin og heiðarleikinn ættu sérstaka samleið?

Jón Magnússon, 13.8.2010 kl. 09:21

3 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Ógnvekjandi að fylgjast með fréttum og sjá hvernig Samfylkingin ver Gylfa. „Hann var ekki að tala um einstök gengistryggð lán,“ sagði þingmaður Samfylkingarinnar í morgunútvarpinu. Nú er gengist í ábyrgð fyrir Gylfa, skiptir engu hver staða hans er.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 13.8.2010 kl. 09:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband