Vinnum núna, fögnum síðar

Eitt að einkennum okkar Íslendinga er að við fögnum oft of fljótt. Við ætlum að vinna í Eurovision, komast inn í Öryggisráðið, vinna Frakka í fótbolta, rúlla yfir Dani í viðskiptum og fá allan heiminn til að horfa til Íslands með því að nota skiptimynt í markaðssetningu.

Gott er að vera jákvæður, betra að vera raunsær. Yndælt að skemmta sér en vinnan skiptir máli.

Að sjálfsögðu vonast maður til að kynningarátakið gangi vel. Ekki veitir af. Í dag var upplýst að ferðir útlendinga til landsins hefðu dregist saman um 15% í maí. Ekki veitir af því að gera sitt besta.

Vel virðist staðið að kynningarátakinu en enn er allt of snemmt að spá neinu um ávinninginn. Margvíslegar kynningarherferðir eru skynsamlegar og flottar en ná samt litlum árangri. Þar með er ekki sagt að ófaglega hafi verið unnið.

 


mbl.is „Þetta er það sem við gerum best“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Svo vill oft gleymast líka að svona átak virkar ekki "instant", heldur á mun lengri tíma. Þess vegna er ekki nóg að gera þetta bara einu sinni heldur verður stöðugt að vera eitthvað í gangi næstu misseri sem bakkar svona átak upp og endurvekur athyglina. Verði það ekki gert, dettur átakið niður svo gott sem dautt.

Ávinningurinn byrjar ekki að skila sér fyrr en eftir tvö til fjögur ár í fyrsta lagi.

Grefillinn Sjálfur - Koma svo! (IP-tala skráð) 3.6.2010 kl. 16:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband