Er allt stjórnarandstöðunni að kenna?

Forsætisráðherra kvartar undan stjórnarandstöðunni. Skilja það fæstir. Sé vandamálið það að stjórnarandstaðan vilji stjórna án þess að taka ábyrgð þá er ekki um annað að gera en að skipta um ríkisstjórn. Ég dreg það stólega í efa að stjórnarandstaðan muni geri  athugasemdir við þá skipan mála.

Í Silfri Egils sagði formaður Framsóknarflokksins að ríkisstjórnin ætti að segja af sér.

Og hver á þá að taka við? spurði forsætisráðherra, kannski þú? Og svo flissuðu þau í einum kór yfir hugmyndinni, Jóhanna og Steingrímur.

Ríkisstjórnin hefur rúman þingmeirihluta. Hún þarf ekki á stjórnarandstöðinni að halda. Hún hefur klúðrað málunum upp á sitt eindæmi hingað til og mun án efa halda því áfram nema hún þekki sinn vitjunartíma. Á meðan er allt stjórnarandstöðunni að kenna.


mbl.is Kosningarnar ljúka ekki málinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur St Ragnarsson

"Hver á að taka við, þú?". Hrokinn í þessari staðhæfingu komandi úr munni forsætisráðherra sem leiðir mestu athafnaleysisríkisstjórn seinni ára er með ólíkindum. Svo kalla þau eftir "samstarfi" sem þau hafa þráfaldlega neitað stjórnarandstöðinni um. Stjórnarandstaðan er auðvitað ekki heilög. Sjallar og Frammarar eiga eftir að gera upp einkavæðinguna. Almenningur er búinn að fá nóg af íslenskum bullstjórnmálum.

Guðmundur St Ragnarsson, 8.3.2010 kl. 17:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband