Hringsól Kristrúnar Frostadóttur í Mogganum

Ef stefn­an sem Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn hef­ur rekið und­an­far­in ár og ára­tugi verður óbreytt eft­ir næstu kosn­ing­ar þá mun það hamla fram­förum í svo að segja öll­um okk­ar stóru mála­flokk­um svo mjög að afar erfitt verður að fara í rík­is­stjórn með þeim.

Þetta segir formaður Samfylkingarinnar í viðtali í sunnudagsblaði Morgunblaðsins 21.5.23. Viðtalið er rýrt, byggist einkum á að hnýta í Sjálfstæðisflokkinn en getur þess ekki hvað hann hafi gert rangt.

Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar vill verða fjármálráðherra og jafnvel forsætisráðherra en hvergi kemur fram hvernig hún myndi stýra þessum ráðuneytum á annan hátt en formaður Sjálfstæðisflokksins og formaður Vinstri grænna. Ef til vill er það bara aukaatriði sem kjósendur taki ekki eftir.

Ekki er nóg að tala hringsóla í viðtali án þess að taka á einu eða neinu nema pælingum sem litlu skipta.

Staðreyndin er einfaldlega sú að sumir eiga ekki erindi í annað en stjórnarandstöðu. Auðvelt er að segja frá því sem mætti ganga betur, erfiðara er að gera betur. Staðreyndin er einfaldlega sú að fjármunir ríkisins eru takmarkaðir. Fjárveiting sem tekið er frá einum málaflokki kann að valda miklum vanda, jafnvel þó vel sé meint.

Allir þekkja stefnu Samfylkingarinnar í fjármálum. Hún kemur glögglega fram í laugardagsblaði Morgunblaðsins 20.2.23. Hún byggist einfaldlega á því að taka lán, safna skuldum. Skuldir Reykjavíkurborgar hafa tvöfaldast á átta árum. Þarf að hafa fleiri orð um fjármálastefnu undir forystu Samfylkingarinnar?

Líklega er besta áróðursbragðið fyrir Samfylkinguna að koma vel fyrir, tala fjálglega, ekki stuða neinn, lofa öllu fögru. Þannig talar formaðurinn Kristrún Frostadóttir í viðtalinu í Mogganum.

Eflaust eru margir hrifnir að geðugri konu sem lofar því einu að komist hún ekki í ríkisstjórn á næsta kjörtímabili þá hætti hún í stjórnmálum. 


Bloggfærslur 20. maí 2023

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband