Einfaldur og ađlađandi ritstíll Jóns Steinars

Ég dáist ađ ritfćrum og málsnjöllum mönnum, ekki endilega vegna málstađarins heldur hvernig ţeir segja frá og beita rökum sínum. Einn ţeirra er Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmađur, og fyrrum dómari viđ Hćstarétt. Hann ritar grein í Morgunblađ dagsins og svarar ţar Jónasi Haraldssyni, lögmanni sem ritađ hafđi grein í sama blađ um Jón Steinar.

Jón Steinar á auđvelt međ skrif. Stíllinn er yfirleitt léttur og auđlesin, málsgreinar hóflega langar, röksemdafćrslan einföld og ađlađandi. Jafnvel svo ađ lesandinn hallast yfirleitt ađ málstađ höfundarins sé hann á annađ borđ opin fyrir rökum annarra en ekki samansúrrađur „beturvitrungur“ eđa međ fyrirframgefnar skođanir sem ekkert bítur á. Erindi Jóns Steinars er oft ađ kynna önnur sjónarmiđ sem eru ekki síđur mikilvćg en ţau sem meirihlutinn virđist ađhyllast. Lífiđ er ekki einföld stćrđfrćđi međ óumbreytanlegum gildum né er allt annađ hvort svart eđa hvítt. Ţví er ágćt regla ađ hlusta á fleiri en ţá hávćru ţví ţeir eru sjaldnast handhafar sannleikans.

Í niđurlagi greinar sinnar segir Jón Steinar:

Ég virđi ţađ alveg viđ Jónas Haraldsson ađ hafa ama af mér. Ţađ hafa margir ađrir menn haft á undan honum. Sjálfum finnst mér ţađ vera vegna ţess ađ ég hef talađ um hluti sem ađrir ţegja um. Ef Jónas legđi á sig ađ kynna sér efni gagnrýni minnar, held ég ađ hann myndi taka undir hana, ţó ađ slíkt vćri ekki til vinsćlda falliđ hjá ađlinum í dómskerfinu. Ég tel Jónas nefnilega heiđarlegan mann, ţó ađ ég telji ađ hann mćtti kannski leggja meira á sig í ţágu sjálfs sín.

Svona skrif eru snjöll og mćttu ađrir taka sér ţau sér til fyrirmyndar. Jón Steinar lemur ekki á gagnrýnanda sínum međ fruntaskap eđa persónulegum ávirđingum. Enginn „fésbókarstíll“ er á svarinu. Hann ber virđingu fyrir gagnrýni Jónasar ţó svo ađ hún sé frekar meiđandi.

Ţegar öllu er á botninn hvolft er ákaflega léttvćgt líki einhverjum ekki viđ annan mann. Ţýđir ţađ ađ allt sem hinn leiđinlegi eđa vondi hefur til málanna ađ leggja sé algjör óhćfa eđa bull? Auđvitađ ekki. Rök má ekki ađ skođa sem framhald af persónu ţess sem ţau leggur fram. Á ţau ber ađ líta algjörlega sjálfstćtt og samţykkja og hafna eftir atvikum.

Afar fróđlegt er ađ lesa grein Jóns Steinars og lćra af henni hvernig best er ađ rökrćđa. Ţađ ćtti aldrei ađ gerast međ skítkasti eins og svo algengt er í ritdeilum hér á landi, ţví miđur. Ein mesta forarvilpan er á „fésbókinni“ og sulla ţar margir án annarra sýnilegra erinda en ađ niđurlćgja ađra. Vera má ađ mannlegt eđli sé einfaldlega ţannig.  


Bloggfćrslur 17. febrúar 2022

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband