Greinilegt sigurmark í landsleiknum
7.10.2016 | 11:46
Greinilegt er af meðfylgjandi skjáskoti úr fótboltaleik Íslands og Finnlands í gærkvöldi að boltinn fór yfir línuna og þar af leiðandi í markið.
Boltinn hafði verið á marklínunni en Alfreð Finnbogason sparkar honum inn og á myndinni er boltinn nærri því komin í andlit finnska markmannsins og Alfreð stígur á línuna á þeim stað þar sem boltinn hafði áður verið.
Boltinn er því að minnsta kosti tveimur boltum fyrir innan.
Á möl fyrir framan bílskúrshlera í Hlíðunum í gamla daga hefði þetta verið talið mark og engin mótmæli tekin gild - sérstaklega ekki þeirra sem fengu markið á sig. Betur get ég varla rökstutt þetta álit mitt.
Þetta sést allt ágætlega í frétt á mbl.is.
Já, og svo er það annað. Markmaðurinn var með aðra hönd ofan á boltanum þegar Alfreð sparkaði honum (boltanum) inn. Telst það brot?
![]() |
Var þetta löglegt mark? (myndskeið) |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Steingrímur er virkasti framíkallari Alþingis
7.10.2016 | 11:44
Ef einhver þyrfti að sækja námskeið í mannasiðum og reiðistjórnun væri það Steingrímur J. Sigfússon, hinn eldklári, mælski en öri leiðtogi Vinstri grænna. Dæmin um reiðiköst hans á Alþingi eru óteljandi og öll þess eðlis að virðing Alþingis hefur tekið dýfur í kjölfarið.
Steingrímur telst ábyggilega einn virkasti framíkallari landsins og er þó með einna lengstan starfsaldur allra þingmanna. Hann hefur þó lítið lært í mannasiðum á þingtíma sínum.
Yfirleitt er það þannig að flestir verða lítt varir við eigin bresti en þeim mun ákafari í að opinbera meinta galla í lunderni annarra. Þetta sést yfirleitt mjög vel í fari stjórnarandstöðunnar á þingi. Næst því koma orð sem svokallaðir virkir í athugasemdum í nokkrum fjölmiðlum láta frá sér fara. Þannig er orðstír þingsins dreginn í svaðið.
Alþingi Íslendinga er engin fyrirmynd í almennum rökræðum. Þegar rökin bresta tíðkast þar að berja á ríkisstjórn og meirihluta með formælingum og leiðindum.
Þetta er í sannleika sagt ógeðsleg framkoma og lítt til þess fallin að hvetja gott og skynsamt fólk til að gefa kost á sér í þingmennsku. Frekar götustráka og -stelpur sem eru þekktari fyrir munnsöfnuð en skynsemi, þekkingu eða reynslu. Lítið bara á bara suma framboðslista.
![]() |
Þarft að fara á námskeið í mannasiðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |