Árni Páll gleymir ađ ţjóđin rasskellti Samfylkinguna

Mikiđ er nú skrýtiđ hvađ Samfylkingin hefur breyst síđan hún missti tiltrú ţjóđarinnar.

  1. Núna vill Samfylkingin ţjóđaratkvćđagreiđslu um ESB en mátti ekki heyra á ţađ minnst ţegar hún var í ríkisstjórn. 
  2. Ekkert gekk í „samningaviđrćđum“ viđ ESB međan Samfylkingin var í ríkistjórn, var hún ţó afskaplega hlynnt ađild. Ekkert gengur nú í samningaviđrćđum viđ ESB enda er ríkisstjórnin ekki hlynnt ađild ađ sambandinu. Ţetta segir formađur Samfylkingarinnar merki um öfgar.
  3. Núna vill Samfylkingin láta semja um laun fyrir kennara. Ţegar hún var í ríkisstjórn vildi hún ekki koma nálćgt samskonar samningi viđ heilbrigđisstéttir. Eina stéttin sem hún samdi viđ, og ţađ hressilega, var forstjóri Landspítalans, en Guđbjartur Hannesson samţykkti ađ hćkka mánađarlaun hans um hálfa milljón króna svo hann gćti auk stjórnunarstarfa starfađ á skurđstofu hálfan daginn.

Árni Páll Árnason, ţingmađur og formađur Samfylkingarinnar, er lítt málefnalegur eđa hvađa grundvöllur er fyrir ţví ađ halda ţessu fram um tillögum um ađ hćtta viđrćđum viđ ESB og draga ađildarumsóknina til baka. Skođum orđ Árna í rćđu hans á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar:

Tillagan er hneyksli og sýnir hversu vegavillt ríkisstjórnin er orđin. 

Tillagan er engu ađ síđur spegilmynd ţingsályktunar um umsókn ađ ESB og ekkert meira hneyksli en umsóknin sjálf. 

Hún brýtur loforđ.

Ríkisstjórnin lofađi ađ hćtta viđrćđum viđ ESB og hún gerir betur en ţađ, leggur til ađ draga til baka ađildarumsóknina. Lofađi annars síđasta ríkisstjórn ađ hćtta viđrćđum viđ ESB?

Hún virđir ţjóđina ađ vettugi.

Spurđi ríkisstjórn Samfylkingar og VG ţjóđina um ađildarumsókn? Nei, hún hafnađi ţví, meirihlutinn hlóg ađ tillögunni og sögđu nóg ađ loknum „samningaviđrćđum“ ađ bera „samning“ undir ţjóđaratkvćđagreiđslu. Ţá laug ríkisstjórn Samfylkingar og VG ađ ţjóđinni vegna ţess ađ ađildarumsókn fylgja ekki samningaviđrćđur og enginn hefđbundinn samningur er lengur gerđur milli umsóknarríkis og ESB.

Hún reynir ađ gera komandi kynslóđum erfiđara fyrir ađ velja ađild ađ Evrópusambandinu, kjósi ţćr svo.

Ţetta er tvískinnungur. Auđvitađ var tillaga um ađild ađ ESB ađ sama skapi til ađ gera komandi kynslóđum erfiđara fyrir ađ hafna ađild ađ sambandinu. Hvernig er hćgt ađ bera svona ótrúlegan og ómálefnalegt bull fyrir almenning. 

Tillagan stenst hvorki lög um ţjóđaratkvćđagreiđslur né stjórnarskrá.

Ţetta er afar vanhugsuđ fullyrđing og stenst enga skođun.

Greinargerđ tillögunnar var full af pólitískri heift og einsýni og í henni eru engin rök fćrđ fram fyrir niđurstöđu hennar um afturköllun ađildarumsóknar.

Menn geta ćst sig endalaust út af pólitískum andstćđingum en er ekki skynsamlegra ađ rökrćđa málin. Sumum hentar ekki slík nálgun. 

Ekkert hagsmunamat. Ekkert um kosti viđ ađild í samanburđi viđ meinta ókosti.

Var gert einhvers konar „hagsmunamat“ ţegar ríkisstjórn Samfylkingar og VG lögđu fram tillögu um ađild ađ ESB?

Stefna formanns Samfylkingarinnar og fjölda forystumanna hennar virđist vera sú ađ láta skeika ađ sköpuđu. Helst halda fram einhverjum útbelgdum fullyrđingum og vonast til ađ eftir nokkur skipti trúi almenningur bullinu.

Sinnaskipti Samfylkingarinnar eftir hrakfarir í síđustu kosningum eru miklar. Almenningur man ţó eftir samţykkt ađildarumsóknar ađ ESB, viđ munum eftir ţví hvernig Árni Páll tók á skuldastöđu heimilanna, viđ munum eftir ţví hvernig fór fyrir skjaldborginni, viđ munum eftir launahćkkunum forstjóra Landspítalans, viđ munum eftir launamálum Seđlabankastjóra og hvernig fyrrum forsćtisráđherra sveik hann og skrökvađi ţví ađ hún hefđi aldrei lofađ neinu.

Er ástćđa til ađ halda áfram upptalningunni? Nóg er eftir. 


mbl.is Vilja ađ samiđ verđi viđ kennara
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Ţórđardóttir

Algjörlega ótrúlegur málflutningur.

Ásthildur Cesil Ţórđardóttir, 15.3.2014 kl. 19:54

2 Smámynd: Jón Sveinsson

Ađ gleima ţví sem mađur segir í gjćr og sega annađ á morgun er vegna ţess ađ fólk er bara svo falskt ađ og alveg sama um náungan og ţannig er Árni páll svo einfalt er ţađ

Jón Sveinsson, 15.3.2014 kl. 22:52

3 Smámynd: Eyjólfur G Svavarsson

Er nema von, ađ ţjóđin hafi rassskelt ţessa Kóna? Stćrsta pólitíska undyrferli sögunnar.

Eyjólfur G Svavarsson, 16.3.2014 kl. 14:21

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband