Bein afleiðing aðgerðaleysis ríkisstjórnarinnar

Þjóðin liggur marflöt undir ráðríkri ríkisstjórn sem hótar og veifar refsivendi sínum út um allar grundir.

Skattahækkanir hafa þegar komið til framkvæmda, innflutningur takmarkast af harðlæstu gengi, kaupmáttur minnkar vegna atvinnuleysis og skattahækkana og því er ekki furða þó landsframleiðsla dragist saman. 

Sú staðreynd að fimmtán þúsund manns séu án atvinnu hlýtur að hafa áhrif á landsframleiðsluna.

Ríkisstjórn sem ekki vinnur hörðum höndum að því að draga úr atvinnuleysi á ekki skilið að fá að starfa. Þessi ríkisstjórn hefur ekki megnað að draga úr atvinnuleysinu, getur ekki sýnt nein merki um að efnahagsstefna hennar hafi haft þau áhrif að atvinnutækifærum hafi fjölgað. Breytingar kunna að vera á atvinnuleysinu vegna árstíðabundinna aðstæðna og það gerist þrátt fyrir aðgerðir ríkisstjornarinnar en ekki vegna þeirra.

 


mbl.is 3,1% samdráttur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnlaugur Ásgeirsson

Sigurður, ekki gera lítið úr því sem hefur áunnist. 

Það er t.d. búið að banna sólarbekki.. og strippbúllur.. þetta eru jú stóru málin enda ekkert sérstakt að gerast á íslandi þannig...

Gunnlaugur Ásgeirsson, 3.9.2010 kl. 10:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband