Þegar gatan ætlar að framfylgja réttlætinu

Þetta gerist alltaf þegar einstaklingar taka málin í sínar hendur og ætla að fullnægja „réttlætinu“. Ótal dæmi er um að saklausir hafa fengið að kenna á svona krossförum. Hamgagangurinn og óþreyjan er svo mikil að meira skiptir að gera eitthvað en að fara rétt að hlutunum.

Hugsum um þetta núna þegar kreppir að í þjóðfélaginu og alþingi götunnar krefst réttlætis gagnvart hinum og þessum bankamönnum og útrásarvíkingum. Látum dómskerfið um málin en látum ekki refsingu bitna á saklausum.

Hversu skammt er ekki frá svona „réttlæti“ í algjört stjórnleysi?


mbl.is Grímuklæddir menn sitja um heimili hjá saklausum pilti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Geir Guðbrandsson

Ég finn lykt af smáhundi, heitir hann kannski Lúkas?

Geir Guðbrandsson, 26.11.2008 kl. 13:29

2 Smámynd: Elías Halldór Ágústsson

Julius Caesar eftir Shakespeare, 3. þáttur, 3. atriði:

Third Citizen 
Your name, sir, truly.

CINNA THE POET 
Truly, my name is Cinna.

First Citizen 
Tear him to pieces; he's a conspirator.

CINNA THE POET 
I am Cinna the poet, I am Cinna the poet.

Fourth Citizen 
Tear him for his bad verses, tear him for his bad verses.

CINNA THE POET 
I am not Cinna the conspirator.

Fourth Citizen 
It is no matter, his name's Cinna; pluck but his
name out of his heart, and turn him going.

Third Citizen 
Tear him, tear him! Come, brands ho! fire-brands:
to Brutus', to Cassius'; burn all: some to Decius'
house, and some to Casca's; some to Ligarius': away, go!

Elías Halldór Ágústsson, 26.11.2008 kl. 13:33

3 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Þó ólíkar séu eru þessar tvær athugasemdir frábærar. Þrátt fyrir háalvarleika bloggsins þá gat ég ekki varist hlátri ... En svona er þetta nú. Myndi vilja hér vitna orðrétt í Gerplu þar sem sá var veginn að þeirri ástæðu einni að hann lá svo vel við höggi. Er það ekki alltaf svo að réttlæti götunnar fer þá leið sem er auðveldust? Leiðin til réttlætis er hins vegar oft krókótt og þungfarin ekki síst fyrir það að ekki er allt svart og hvítt.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 26.11.2008 kl. 14:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband