Draumpspakir spá sjö marka tap gegn Portúgölum

Tala sjö er merkileg. Biblíulega, stærðfræðilega og annars. Í dag hafa hringt í mig sjö manns sem telja sig draumspaka, konur og karlar af öllum kynjum og aldri. Tilgangurinn var að segja mér hvernig leikurinn við Portúgali fer í kvöld.

Öll halda því fram að við töpum með sjö mörkum gegn engu. Einn gerir hins vegar þann fyrirvara á spá sinni að ef Eiður er í byrjunarliðinu vinnur íslenska liðið með einu marki sem Selfyssingurinn í liðinu skorar á 72. mínútu. að öðrum kosti verður þetta dagur Ronaldós sem skorar fjögur mörk.

Hef enga trú á því að leikurinn fari svona en ætla ekki að horfa á hann. Geng upp á Vífilsfell í staðin og set niður nokkrar stikur.

Og meðan ég man, Ísland lendir í þriðja sæti í riðlinum og kemst áfram. Þjóðverjar verða Evrópumeistarar. Englendingar komast ekki í milliriðil. Lars fer heim til Svíþjóðar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Þarf nokkuð að spila leikinn?

Heimir Lárusson Fjeldsted, 14.6.2016 kl. 16:44

2 identicon

Ég ætla bara að óska vinum mínum í Portúgal til hamingju með það að hafa náð jafntefli gegn okkur.

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 14.6.2016 kl. 21:50

3 identicon

Parabéns Portúgal!

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 14.6.2016 kl. 21:51

4 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Já, til hamingju, „parabéns“, Portúgal að hafa náð jafntefli við íslenska landsliðið.

Ét ofan í mig pistilinn hér fyrir ofan. Tek aldrei aftur við símtölum frá þessum „draumspöku“. Greinilega afar slæm tengin við framtíðina, varla hægt að sjá í draumi hvað gerist í framtíðinni.

Áfram Ísland.

P.S. Fór engu að síður á Vífilsfell og stakk niður stikum.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 14.6.2016 kl. 21:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband