Skýrslunni um íbúðalánasjóð slátrað

Skýrsla nefndar Alþingis um Íbúðalánasjóð hefur fengið afar slæma gagnrýni. Eins og svakalegast er í grein sem Sigurður Þórðarson, fyrrum ríkisendurskoðandi, skrifar í Morgunblaðið í morgun. Hann var hógvær embættismaður og vandi sig á að ræða málin á yfirvegaðan hátt. Þannig vinnur hann enn þann dag í dag.

Í niðurlagi greinar Sigurðar segir hann:

Eftir lestur skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis um Íbúðalánasjóð og fjölmargra athugasemda sem fram hafa komið opinberlega við trúverðugleika hennar og mat nefndarinnar á einstökum þáttum, er mér efst í huga að það hlýtur að vera tilefni fyrir Alþingi Íslendinga að hugleiða hvaða viðmið hafi verið viðhöfð við ákvörðun efnis, tíma, kostnaðar og val á nefndarmönnum í upphafi. Þá hlýtur umræðan almennt um efni skýrslunnar, bæði á þingi og í fjölmiðlum landsins, og um stofnanir hins opinbera og sjálft Alþingi að vera hinu háa Alþingi nokkurt umhugsunar- og áhyggjuefni. 

Mér er til efs að nefndin um Íbúðalánasjóð geti réttlætt sig eftir þetta.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Þeta niðurlag Sigurðar, með tilvitnun í nrefndarálitið er alger steypa! Concrete steypa! Sigurður..er ekki rétt að þú lesir þettta aftur yfir og bloggir svo, eftir á, ef þér finnst tilefni til að hneykslast?

Halldór Egill Guðnason, 23.7.2013 kl. 05:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband