Hverjum er ekki sama?

Hverjum er ekki sama þótt þingmenn Samfylkingar og Vinstri grænna mótmæla. Ekki fannst þeim þeir þurfa að hugsa til stjórnarandstöðunnar þegar þeir voru í meirihluta.

Þannig koma gjörðir Björns Vals Gíslasonar, varavaraþingmanns Vinstri grænna, mátulega í hausinn á honum aftur rétt eins og hann væri Pílatus endurborinn. Hallgrímur Pétursson orti um þann síðarnefnda:

Pílatus keisarans hræddist heift
ef honum yrði úr völdum steypt.
Þetta sem helst nú varast vann
varð þó að koma yfir hann.

mbl.is Mótmæltu afgreiðslu frumvarpsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birgir Örn Guðjónsson

Björn Valur Gíslason.... geisp.

Hann er svo einfaldur, að hann fattar ekki að hans tími er líðinn.

Birgir Örn Guðjónsson, 28.6.2013 kl. 19:24

2 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Ég er nú að verða gamall, en ekki hef ég á minni lönguleið rekist oft á viðlíka ómerkinga og Steingrím og þennan Björn Val.

En auðvita hafa slíkir tilverurétt og gagnið er ábending.

En það er sniðugt að þeir skuli báðir vera ræktaðir úr sömu hjörð og allir hinir ómerkingarnir sem þvælst hafa fyrir mér á slóðinni.   

Hrólfur Þ Hraundal, 29.6.2013 kl. 10:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband