Nýr meirihluti á þingi

Nýr meirihluti hefur myndast á Alþingi og virðist hann ætla sér að taka á atvinnumálum þjóðarinnar, taka höndum saman við bæjarstjórn Reykjanesbæjar og koma hafnarmálum í eðlilegt standa. Á hliðarlínunni stendur svo Ögmundur Jónasson, dómsmála- og samgöngumálaráðherra og tvístígur. Hann má ekki horfa til álvers, það er ekki í anda VG, og af ógurlegu málæði, eins og hann er vanur, malbikar hann um önnur not sem hægt væri að hafa af höfninni.

Svo mun Steingrímur fjármálaráðherra segja eins og hann er vanur, þetta mun engin áhrif hafa á stjórnarsamstarfið. VG með öll sín prinsíp lætur að venju Samfylkinguna valta yfir sig. 

Með því að greiða úr fjármálum Helguvíkurhafnar verður bæjarstjórn gert kleyft að halda áfram með undirbúning álversframkvæmda. Hins vegar þarf miklu meira til og það dýrasta er viðhorfsbreyting VG en hið einfalda er ný ríkisstjórn. Best væri auðvitað nýjar þingkosningar.


mbl.is Ríkið borgi 700 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Sæll við höfum ekki efni á draug í Helguvík því að þar kemur aldrei álverksmiðja!

Sigurður Haraldsson, 11.10.2010 kl. 09:33

2 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

O jú Sigurður - vissulega verður reist álver þar - VG fær ekki að drepa það

sjáumst á morgun

Ólafur Ingi Hrólfsson, 11.10.2010 kl. 09:36

3 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Sæll Ólafur hvar eigum við að fá orkuna?

Sigurður Haraldsson, 11.10.2010 kl. 09:41

4 Smámynd: Skúli Víkingsson

Orkan verður náttúrlega ófáanleg ef þess er gætt að rannsóknarboranir fari ekki fram á háhitasvæðum og alls staðar þar sem er vatnsafl verði land friðlýst sem ósnertanleg náttúruundur. Til þessa hvorts tveggja höfum við VG. Það má svo hindra fleiri atvinnugreinar ef hagur fer að vænkast  óþægilega mikið.

Skúli Víkingsson, 11.10.2010 kl. 10:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband