Vegið að faglegu sjálfstæði Seðlabankans

Auðvitað er hægt að losna við menn, hreinsa til af pólitískum hvötum. Það er rétt sem Sigurður Líndal á við að faglega stafi nú varla nein hætta af því að einn af bankastjórum Seðlabankans sé lögfræðingur og hinir tveir hagfræðingar. Af hagfræðingum er nú enginn hörgull en mikilvægt er að stjórnun bankans sé í styrkum höndum. Starfsmenn bankans hafa sjálfir lýst því yfir.

Nú, næst á dagskránni verður líklega að þvinga í gegnum Alþingi lög um breytingu á starfi Seðlabankastjóra svo hægt sé að koma nýjum manni að.

Með þessu öllu er vegið að faglegu sjálfstæði Seðlabankans, nokkuð sem núgildandi lög áttu að koma í veg fyrir. Síðan má búast við því að bankinn verði stjórnlaus í nokkrar vikur meðan verið er að ganga í gegnum ráðningarferli. Það er ekkert ósvipað því stjórnleysi sem viðgengist hefur síðustu tvær vikur í Fjármálaeftirlitinu.


mbl.is Það er hægt að losna við menn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Vegið að flokkslegri stjórnun Sjálfstæðisflokksins ??? ætti þetta kannski að heita.

Jón Ingi Cæsarsson, 9.2.2009 kl. 08:04

2 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Þú mátt kalla þetta hvað sem þú vilt en fyrir alla muni vertu málefnalegur inni á blogginu hjá mér. Annað bið ég ekki um.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 9.2.2009 kl. 08:07

3 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Hér er ágætis úttekt á þessu hjá Helga Hjörvar.

http://www.helgi.is/faces/blog/entry.do?face=hjorvar&entry=84566

Sigurður M Grétarsson, 9.2.2009 kl. 09:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband