Er kuldinn Davíð Oddsyni að kenna?

Eftir er að ákveða hvort kuldakastið sé ekki bara Davíð Oddssyni að kenna. Líklegast er að hinir háværustu muni benda á Davíð enda má rekja sjálfskipaðir álitsgjafar og spekingar þjóðarinnar flest allt sem miður hefur farið í efnhagasmálum, stjórnmálum og veðri til vanhæfni hans. Heilög Jóhanna situr þess vegna ekki með hendur í skauti heldur ætlar að reka manninn í dag í nafni þjóðarinnar.


mbl.is Kalt á landinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Og hvernig dettur flugfreyjunni í hug að það sé nóg að BIÐJA bankastjórana að fara, á einhverjum þjóðarviljagrundvelli. 

Ég meina, hverskonar stjórnmálamaður er sestur í stór forsætisráðherra.

Að sjálfsögðu eiga þessir einstaklingar - allir - sinn rétt skv. lögum um opinbera starfsmenn og því þarf að semja við þá um starfslok.  Það er alveg á hreinu.

Sigurður Sigurðsson, 3.2.2009 kl. 09:07

2 Smámynd: Flosi Kristjánsson

... eða eins og Þórður Breiðfjörð, fréttamaður á Útvarp Matthildi mundi orða það: "Davíð Oddsson var voða, voða vondur maður!"

Flosi Kristjánsson, 3.2.2009 kl. 09:40

3 Smámynd: Guðmundur Björn

Það á nú eftir að draga Davíð fyrir rétt vegna móðurharðindanna, Suðurlandsskjálftans hins síðari og þynningar ósónlagsins yfir norðurhveli jarðar.

Guðmundur Björn, 3.2.2009 kl. 22:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband