Tekur Sól þátt í blöffi iðnaðarráðherra?

Sól á Suðurlandi, Græna netið og hvað þetta allt heitir er greinilega samtök á vegum Samfylkingarinnar, stjórnarnandstaðan. Skil til dæmis ekki á hvaða forsendum Sól á Suðurlandi þykist gefa iðnaðarráðherra prik. Samtökin segja að ráðherran hafi lýst því yfir að rafmagnið úr neðri hluta Þjórsár fari ekki í álver. alveg er það nú stórmerkileg yfirlýsing eða hitt þó heldur.

Þvílíkt blöff sem þetta er. Vita samtöki ekki að þetta er allt sama púllían, sami vasinn. Rafmagnið fer allt inn á hringnetið og er tappað af hvar sem þess er þörf. Ekkert öðru vísi rafmagn sem kemur frá einn virkjuninni umfram aðra. Hreinlega barnalegt að halda það að maður sem eigi þrjú þúsund krónur í vasanum geti fullyrt að aðeins einn þúsund kallinn fari í sígrettur - aðalatriðið er að hann kaupir þær af eigin fé. Skil ekkert heldur í ráðherranum að halda fram svona vitleysu.

Niðurstaðan hlýtur því að vera a Sólin sé hluti af Samfylkingunni. Aldrei áður hefur hún ályktað stuðning við nokkurn stjórnmálamann nema hann sé á móti virkjuninni í neðri hluta Þjórsár. Og nú allt í einu virðist sem Sólin hafi látið af andstöðu við virkjunina.

Svo er alveg makalaust að blanda álverði í umræðuna. Það var að minnsta kosti ekki gert þegar álverð var á uppleið. Fólk þarf að sýna einhverja staðfestu í málflutningi sínum. Annað hvort vilja menn virkjanir í neðri hluta Þjórsár eða ekki, skiptir engu í hvað orkan á að fara eða hvernig verð á framleiðslueiningum stendur á mörkuðum.


mbl.is Sólin styður Græna netið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband