Pressa líka á Gordon Brown ...

Um daginn var Steingrímur að kvarta um að hann fengi ekki að vera með í viðreisn stjórnarflokkanna. Auðvitað er það sárt að vera skilinn útundan. Einn og óstuddum tókst honum að snúa Norðmönnum til liðs við okkur:

Hann segir skrif hans í Aftenposten á dögunum hafa sett pressu á að Norðmenn tæki frumkvæði í því að bjóða fram aðstoð sína með þessum hætti 

 Gæti hann ekki sett líka sett pressu á fjandvin okkar Gordon Brown, vísað honum veginn eins og Norðmönnum. Skítt að við fengum ekki sætið í Öryggisráðinu. Sigfússon hefði verið tilvalinn í það og þr hefði hann sett pressu á alla vondu kallana í heiminum.


mbl.is Eins mikið samflot með Norðmönnum og hægt er
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ef enginn stjórnmálamaður væri verri en Steingrímur J. Sigfússon, þá væri ekki mikið að í okkar landi.

Jakob Falur Kristinsson, 22.10.2008 kl. 17:24

2 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Fyllilega sammála því. Þessi færsla var nú eiginlega bara spaug vegna þess sem haft er eftir Steingrími. En öllu gamni fylgir ...

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 22.10.2008 kl. 17:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband