KR-ingar trúir sauðalitunum ...

MemeKR-ingar sjá lífið í svart-hvítu, nema þegar þeir nota varabúninginn sem er langt frá því að vera fallegur en er þó talsvert skárri en hinn langröndótta skyrta.

Nike, sem hefur lengi talist hafa nokkuð vit á hönnun og þar með litasamsetningum gerði KR tillögu um að nútímavæða þessa afgömlu skyrtu í sauðalitunum. Trútt upphafinu hafnaði félagið henni en skaðinn var skeður. Sagt er að fjölmargir KR-ingar á besta aldri séu enn á gjörgæslu og nokkrir þeirra muni aldrei ná sér þrátt fyrir að rauða röndin hafi aðeins átt að vera örmjó.

Í austurhluta Reykjavíkur er félag sem varpar öndinni léttar enda telja meðlimir þess það eiga fyrsta veðrétt í skyrtu með rauðri rönd, að vísu nokkuð breiðari en Nike gerði tillögu um.

Breytingar á KR-búningnum hafa greinilega meiri og alvarlegri áhrif á félagið en slakt gengi þess í tuðrusparki.

Myndin er af lömbum ... þau eru að hluta til í KR-litunum.


mbl.is KR búningur án rauðra randa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

KR er sigursælasta lið landsins, þökk sé m.a frábærum búningi.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 11.4.2017 kl. 12:14

2 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

fötin skapa ekki manninn í þessu tilfelli- maðurinn skapar fötin !sealed

Erla Magna Alexandersdóttir, 11.4.2017 kl. 19:39

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Kr-ingar eru trúir liði sínu,en Breiðablik er sigursælasta knattspyrnufélag landsins,þegar yngri flokkar karla og kvenna eru talin með meistaraflokkunum. 

Helga Kristjánsdóttir, 11.4.2017 kl. 20:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband