Hálfkjörinn ţingmađur situr í stjórn Ríkisútvarpsins

HálfkjörinnHvenćr er mađur kjörin á ţing og hvenćr ekki? Ţetta er ein mikilvćgasta spurningin sem hrokkiđ hefur upp úr ţeim stjórnmálamanni sem telur sig hvorki kjörinn né ókjörinn. Líklegast er hann hálfkjörinn.

Málavextir eru ţeir ađ varaţingmađur Samfylkingarinnar, Mörđur Árnason, situr á vegum hennar í stjórn Ríkisútvarpsins. Svo segir í lögum íslenskum ađ sá megi ekki sitja í stjórninni sem er kjörinn á ţing eđa í sveitarstjórn.

Mörđur segist varaţingmađur og ţurfi ţví ekki ađ víkja nema ţegar hann sitji ţingfundi til vara fyrir ţann sem er ađal. Hann sé ţví ekki kjörinn, bara hálfkjörinn.

Engu ađ síđur bauđ hann sig fram í kosningum, var í fjórđa sćti Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördćmi suđur. Ţađ var sumsé stađföst ákvörđun frambjóđandans og flokksins hans ađ hann fćri á frambođslista og međ hálfum huga samţykktu kjósendur flokksins í ţingkosningunum 2013 ađ Mörđur vćri hálfkjörinn en ekki alkjörinn.

Ekkert segir um hálfkjörna menn í lögum um stjórnarsetu hjá Ríkisútvarpinu. Mörđur getur ţví skákađ í ţví skjólinu ađ hann megi sitja í stjórn fyrirtćkisins. Hér er alveg hćgt ađ taka undir ţessa frumlegu lögskýringu ... og ţó.

Hvenćr er annars Mörđur kjörinn á ţing og hvenćr ekki? Sá má teljast óétinn sem sest viđ matarborđiđ en fyllir ekki maga sinn. Fór sá ekki í sund sem lét sér nćgja ađ fara í heita pottinn? Gekk sá á Esjuna sem fór ađeins upp ađ „steini“? Er hćgt ađ vera hálffullur eđa alfullur? Er hćgt ađ hálfbrjóta lögin ...? 

Má vera ađ ţetta sé tóm vitleysa og misskilningur, ađ minnsta kosti hálfvitleysa og hálfmisskilningur. Auđvitađ er ţetta hálfvitagangur hjá mér enda jólaundirbúningur ađ hálfdrepa mig.

Myndin er af ţeim hluta Marđar sem var kjörinn á ţing.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Egill Guđnason

Kallast ţetta ekki ađ vera hálf slappur ?

Halldór Egill Guđnason, 22.12.2015 kl. 14:41

2 identicon

Vćri ekki nćr ađ skera helminginn af myndinni lárétt og nota neđri partinn.cool

Rafn Haraldur Sigurđsson (IP-tala skráđ) 22.12.2015 kl. 19:39

3 Smámynd: S i g u r đ u r   S i g u r đ a r s o n

Ţú átt ábyggilega viđ mig, Halldór Egill. Og ţađ mun vera rétt ályktađ.

Hvernig sem myndin er skorin, Rafn, ţá er mađurinn alltaf hálfur ... Ekki satt?

S i g u r đ u r S i g u r đ a r s o n, 22.12.2015 kl. 23:49

4 Smámynd: Halldór Egill Guđnason

Nei, Sigurđur. Ég á ekki viđ ţig, svo ţví sé haldiđ til haga og áréttađ. Ég á viđ viđfangsefni pistilsins. Hálfir ţingmenn finnast sennilega hvergi á byggđu bóli, nema á Íslandi.

Góđar stundir, međ kveđju ađ sunnan.

Halldór Egill Guđnason, 23.12.2015 kl. 01:05

5 Smámynd: Gunnar Heiđarsson

Mörđur sagđist reyndar ekki hafa veriđ hálfkosinn, heldur ađ hann vćri bara alls ekki kosinn.

Hvert á mađur ađ leita til ađ fá ađ vera varaţingmađur? Ég gćti alveg hugsađ mér ađ taka svona eins og einn mánuđ í ađ sitja á ţingi, skilst ađ ellilífeyririnn hćkki verulega viđ slíkt. Ef ekki ţarf kosningu til ţess hlýt ég ađ geta sótt um. Spurningin er bara hvar!

Gunnar Heiđarsson, 23.12.2015 kl. 07:28

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband