Þegar við reyndum að gera íshelli í Skálafellsjökli

990809-32

Fyrir um fimmtán árum reyndi ég að búa til íshelli í Skálafellsjökli en árangurinn var ekki mikill. Tilgangurinn var auðvitað sá að búa til ferðamannastað, viðkomu- og fróðleiksstað fyrir ferðamenn. Á þessum árum var ég framkvæmdastjóri Jöklaferða, fyrirtækis sem sá um vélsleða- og snjóbílaferðir um Vatnajökul og veitinga- og gistiaðstöðu auk ferðaskipulagninga í Austur-Skaftafellssýslu.

990809-34

Við völdum okkur stað ofarlega í Skálafellsjökli þar sem jökullinn var ekki á mikilli hreyfingu. Á þessum tíma var alltaf mikil ákoma á jökulinn um veturinn og hún entist fram á haust. Þess vegna þurftum við að moka djúpa gryfju til að komast að ísnum.

Þegar þangað var komið notuðum við háþrýstivélar til að sprauta vatni á ísinn og brjóta hann þannig. Þetta tókst og ísinn brotnaði smám saman og við náðum að komast inn í ísinn. Mest held ég að við höfum farið um það bil þrjá til fjóra metra inn í jökulinn.

990809-30

Þetta var svo gríðarleg mikil vinna. Ég hafði enga peninga í þetta og ákvað í upphafi að þetta yrði tilraunaverkefni og fékk vini og kunningja til að hjálpa til.

Þarna komu að málum Sigurður Árni Þórðarson, prestur, Tryggvi Agnarsson, lögmaður, Árni Jóhannsson, viðskiptafræðingur, Þorkell Þorkellsson, ljósmyndari, Sigurður Ólafsson, húsasmiður, Ögmundur Guðnason á Höfn og fleiri og fleiri. Allt hörkukallar og duglegir til vinnu. Margir þeirra áttu það sameiginlegt að trúa á verkefnið og höfðu oftast verið svo vitlausir að leyfa mér að teyma þá í alls kyns vitleysur

990809-29

Ég hafði áður mikið rætt við Fjölni Torfason á Hala um svona helli en hann og Þorgerður Arnórsdóttir, kona hans voru og eru stórmerkir frumkvöðlar. Það voru þau sem byrjuðu með bátsferðir á Breiðamerkurlóni, hófu síðar silungseldi á Hala og stofnuðu loks Þorbergssetur.

Þér dugar ein eldspýta, sagði Fjölnir og glotti. Ég vissi auðvitað ekki hvort hann var að gera at í mér eða væri fúlasta alvara. En hann hafði fræðilega rétt fyrir sér. Hitinn af logandi eldspýtu dugar til að bræða ísinn, að minnsta kosti lítilsháttar. Og svo leiddi hvað að öðru og loks var hann búinn að sannfæra mig um að ísinn myndi láta undan, hvaða aðferð sem ég beitti. Andaðu bara á hann, sagði Fjölnir og hló.

990809-27

Auðvitað reyndist þetta rangt hjá Fjölni. Ísinn er rosalega harður. Hann er mörg hundruð ára gamall og hefur myndast undir þrýstingi, mikið farg hvíldi á honum og þess vegna þarf meira en eldspýtu eða vatnsþrýstigræjur.

Já, hann var alveg déskoti harður og illur viðureignar. Það má því ljóst vera að í Langjökli verður gripið til betri verkfæra.

Eldur þyrfti að vera mjög mikill, líklega koma frá eldvörpu af einhverju tagi, og vatnsþrýstingurinn þyrfti að vera miklu meiri en ég hafði yfir að ráða.

Svo var vandinn sá að koma vatni að staðnum. Við brugðum á það ráð að fá lánaðar stórar bláar tunnur, fylltum þær af vatni og fórum daglega með uppeftir þessa fjóra daga sem við eyddum í verkefnið.

Ísinn var dásamlega fallegur og tær þarna uppi. Hann virtist algjörlega ómengaður af grjóti, sandi, leir eða ösku. Aðeins fallegur og tindrandi og ég sá framtíðina í honum en las því miður ekki smáa letri, þetta með kostnaðinn. Og því fór sem fór.

990809-50

Þeir hlógu að mér margir Hornfirðingarnir og það var skiljanlegt. Hvernig átti fólk árið 1999 að átta sig á því að veðja ætti á ferðaþjónustu sem atvinnugrein.

Á þessum árum héldu margir að sjávarútvegur og landbúnaður væri framtíðin fyrir Ísland. Hins vegar voru þeir til sem gerðu sér far að kíkja á verkið og hvöttu mig til dáða.

Þeir sem skildu var ljóst að ef hægt væri að búa til íshelli væri kominn staður sem sjálfkrafa gæti dregið að þúsundir ferðamanna og þúsund möguleikar væru með hann. Þar væri hægt að segja frá jöklafræði, bjóða upp á veitingar og gistingu. Og hellirinn hefði engin takmörk. 

Hægt væri að útbúa „herbergi“ eða „sali“ eftir þörfum. Rekstur jöklaferða þyrfti ekki að byggjast á stórhættulegum vélsleðaferðum enda vitað mál að það fer ekki öllum að stjórna ökutæki á jafn hættulegum stað og Skálafellsjökull er víða.

990809

Fljótlega hurfu öll ummerki um hellisgerðina, jökullinn græðir sig sjálfur.

Ég hef alveg tröllatrú á því sem gera á Langjökli. Vandinn er hins vegar að finna stað sem er tiltölulega kyrr, jökullinn sé þar ekki á mikilli hreyfingu. Það getur valdið mikilli hættu en þó er hætt við að skelfing grípi um sig þegar jökullin hreyfist örlítið, þá heyrast undarleg hljóð.

Myndirnar sem hér fylgja voru teknar af gerð íshellisins. Þær eru allar frá upphafsdögunum en því miður á ég ekki mynd af hellinum þegar við hættum greftri.

990809-28
mbl.is Gera 300 m ísgöng undir Langjökli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: eir@si

Ég verð að játa að ég hef alveg rosalega litla trú á þessu hjá þeim á Langjökli.  Jöklar eru á hreyfingu og í raun vart gerlegt að finna stað á íslenskum þíðjökli sem er ekki á hreyfingu.  Það væri helst efst á jöklinum en þar hins vegar safnast fyrir snjór á yfirborði sem bráðnar ekki yfir sumarið og þá færist snjórinn þar neðar og neðar og fer svo að færast til hliðar þegar komið er á meira dýpi.  Eina forsendan sem ég sé í fljótu bragði sem myndi gera þetta mögulegt væri að nýta sér það að jökullinn er að hopa og vera þá mjög ofarlega á jöklinum þar sem hreyfing er líklega hvað minnst og treysta á það að vera samt fyrir neðan jafnvægislínu jökulsins þannig að mannvirkið sé ekki að færast fjær yfirborði jökulsins.  En ég hef ekki séð eða heyrt að jöklabúskapurinn sé orðinn það dapur þarna.

Hins vegar þá veit ég líka að a.m.k. austari Hagafellsjökullinn hreyfist rosalega lítið þannig að þar fyrir ofan er frekar von.  Þeir eru hins vegar að gera þetta frekar fyrir ofan vestari Hagafellsjökulinn og hann gæti átt eftir að hlaupa innan fárra ára.

eir@si, 13.12.2013 kl. 10:43

2 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Spurningin er sú hversu mikið jökullinn hreyfist. Svo verður að geta þess að svona hellar eru til víða um heim eins og fram kemur í greininni í Mogganum. Mér finnst þetta stórkostleg tilraun sem, ef tekst, gæti verið mjög arðbær.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 13.12.2013 kl. 10:50

3 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Tule herstöðin á Grænlandi er að einhverju leiti grafin í jökulinn held ég..

Thule Air Base

www.herad.is

Egilsstaðir, 13.12.2013  Jónas Gunnlaugsson 

Jónas Gunnlaugsson, 13.12.2013 kl. 11:38

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Fyrir einhverjum árum réðust kvikmyndagerðarmenn með aðstoð " sérfróðra" í að gera íshelli fyrir kvikmyndatökur. Ekki blessaðist það betur en svo að klakastykki hrundi úr lofti hellisins og hálf drap einn mann.

Það er enginn staður kyrr á svona jökli. Hreyfingin er i allar áttir og í andstæðar. Mér líst ekkert á þetta rugl og efast um að það svari kostnaði.

Annað vandamál inni í svona íshellum er súrefnisskortur og er loftið fljótt að mettast af koltvísýringi. Það hef ég reynt sjálfur og má twljast gæfusamur að hafa sloppið út.

Botna ekki í að öessir menn séu að fá leyfi fyrir þessu, nema þá að þeir hafi sleppt því að biðja um slíkt.

Jón Steinar Ragnarsson, 13.12.2013 kl. 12:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband