Stígðu frá völdum ...!

Oft kemur mbl.is á óvart með tungutaki sínu. Nú er því haldið fram að mótmælendur krefjist þess að forseti Sýrlands „stígi frá völdum“. Hann ku ekki vera krafinn um að synda frá völdum, hlaupa, hoppa, ganga, labba eða skokka frá völdum.

Ó nei, Bashar al-Assad er ekki einu sinni beðinn um að láta af völdum, segja af sér eða hætta þessum andskota.

Tökum kröfuna upp hér á landi og krefjumst þess að Jóhanna stígi frá völdum (Please step down ...).


mbl.is Mikil mótmæli í Sýrlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband