Getur fjármálaráðherra haft forystu um atvinnusköpun?

Svo lítur út fyrir að fjármálaráðherra ætli sér að finna upp hjólið enn á ný. þar af leiðandi verður málið enn flóknara. En rétt eins og Elín Ragnheiður Árnadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir, er einfaldast að líta til fordæma í öðrum löndum og hvernig málið er leyst þar.

Fordæmið sem verið er að skapa hér á landi verður vonandi ekki þannig að ríkisvaldið loki á væntanlega fjárfesta og rekstraraðila vegna þess að hann getur ekki haft forystu um atvinnusköpun á landinu. Því miður virðist ráðheerran vera nú orðin fremstur kerfiskalla á Íslandi.


mbl.is Málið flóknara en látið er í veðri vaka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Víglundur Sigurðsson

 Það er orðið dálítið bananalegt ef hin ýmsu fyrirtæki geta hellt sér út í stórframkvæmdir hverskonar reist Álver og gagnaver og hvaðeina og með allt komið á koppinn og búin að vekja væntingar hjá almenningi, þá fyrst er hugað að lögum og leyfum sem landslýður hefur sett um slíka starfsemi. Þá á stjórnin að sníða og breyta lögum gefa afslætti og opna allar dyr.

Þessir "víkingar" beita svo fyrir sig desperat almenningi og þá er Ráðherra orðinn afturhald og fjallagrasabóndi! Reykjanesbær bakaði sína köku alfarið sjálfur og verður bara að sæta lögum eins og önnur fyrirtæki. Við höfum nýlega reynslu af því þegar stjórnsýslan er teygð og toguð eftir hentisemi víkinga og stjórnmálamanna. Lítið dæmi: Turninn í Borgartúni sem skyggir á Sjómannaskólavitann.

Víglundur Sigurðsson, 9.9.2010 kl. 11:59

2 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Skussum gengur yfirleitt illa með allt!

Óskar Guðmundsson, 9.9.2010 kl. 13:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband