Um 200 m eftir ofan í Hvannárgil

26-3_kl_10.jpg

Breytingin sást á vefmyndavélum strax um miðnætti í gærkvöldi. Í morgun hefur mátt fylgjast með gríðarlegum gufumekkjum sem risið hafa öðru hverju vestan við Bröttufannarfell. Þeir stafa frá hraunstraumi sem stefnir að hömrunum ofan við Hvannárgil og bræðir forna snjóskafla sem eru á vegi hans.

Ætla má að nú séu um tvö hundruð metrar í brúnina.

Þetta er ástæðan fyrir því að í morgun óx vatn í Hvanná. Litlar líkur eru á að mikill vatnavöxtur verði aftur í ánni því frekar lítill snjór er á þeim slóðum sem hraunið rennur um og enginn snjór í Hvannárgili.

Framhaldið byggist svo á gígnum uppi á Fimmvörðuhálsi, hvort hann sé aflögufær með hraun til að senda vesturyfir.  


mbl.is Beinist að Hvannárgili
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Það er spennandi að fylgjast með framvindu mála

Gunnar Th. Gunnarsson, 26.3.2010 kl. 11:49

2 Smámynd: Jonni

Mér sýnist á vefmyndavélinni að hraunið sé farið að falla niður í gilið og meira að segja alla leið niður í botn.  Það hafa amk komið gufubólstrar úr gilsbotni.

Jonni, 26.3.2010 kl. 15:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband