Ísland er best, hlustum ekki á úrtöluliđiđ, gleđjumst

Ísland er best, áfram Ísland, hrópum viđ međ stolti og fögnum góđum árangri. Og viđ hlćgjum og ţurrkum eitthvađ úr augnkrókum og syngjum.

Svo eru alltaf einhverjir úrtölumenn, liđiđ sem er „virkt í athugasemdum“ og segja ađ Ísland sé ekki best, allt ónýtt hér á landi og ţannig er malbikađ út og suđur. Ţetta er fólkiđ sem alltaf er á móti, brosir aldrei nema ţegar einhver lendir í óhappi, meiđir sig.

Nei, segi ég. Ísland er best. Hvađ annađ á mađur ađ segja. Eigum viđ ađ sćtta okkur viđ eitthvađ annađ? Allflestar ţjóđir segja ţetta sama um sitt land, sína ţjóđ. Eigum viđ ađ rífast um hver hefur rétt fyrir sér?

Ţannig gerist ţađ ekki. Viđ erum best af ţví ađ viđ stöndum okkur vel. Vel má vera ađ ađrar ţjóđir séu jafngóđar og jafnvel betri í fótbolta, handbolta eđa öđru ţví sem viđ miđum okkur viđ. Um ţađ snýst hins vegar ekki fullyrđingin.

Upphrópunin, Ísland er best, er tjáning, fullyrđing um ađ okkur líđi vel í fallegu landi međ góđum samlöndum. Viđ niđurlćgjum enga međ ţessu, alls ekki. Viđ erum ţađ sem viđ erum.

Hlustum á ţjóđsönginn, syngjum „Ég er kominn heim ...“, sýnum gleđi, leyfum okkur ađ tárast af saman af einskćrri hamingju.

Hlustum ekki á úrtöluliđiđ sem segir ađ allt sé ónýtt, heilbrigđiskerfiđ, menntakerfiđ og annađ sem ţví dettur í hug. Áfram Ísland, bćtum ţađ sem ţarf ađ laga en gerum hvorki lítiđ úr okkur sjálfum né ţjóđinni.

Gleđjumst af ţví ađ íslenska karlalandsliđiđ er komiđ á HM, gleđjumst međ árangri kvennalandsliđsins, styđjum íţróttastarfiđ.

Sýnum gleđi og samtstöđu ţegar vel gengur, bćtum okkur ţegar viđ höfum ekki náđ ţeim árangri sem viđ ćtluđum. Alltaf, alls stađar. Veljum ekki úrtöluliđiđ.


xxx kjafturinn á Kára Stefánssyni

KáriRitskođun er mikiđ mein. Skođun á eigin orđum er í mörgum tilfellum skárri. Hef hér eytt út ljótum pistli um Kára Stefánsson. Hann (pistillinn) er höfundinum ekki til sóma. Ţađ breytir ţó ekki skođun ađ áđurnefndur karl er hálfklikkađur.

 

Biđ trygga lesendur mína afsökunar á orđavali í ţessum pistl, sem hér er ritađur í anda Kára Stefánssonar, stókapítalista og komma. Hann hefur aldrei veriđ mér nein fyrirmynd en  međ illu skal út reka.


mbl.is „Viđ idjótin höfum leyft honum ţetta“
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Ţrjú núll fyrir Ísland

BoltarÉg ţorđi varla ađ horfa á landsleik Íslands og Tyrklands fótbolta síđasta föstudag. Byrjađi, fannst Tyrkirnir miklu betri og slökkti ţá á tćkinu og fór ađ vinna. 

Hélt ađ Tyrkinn myndi rúlla ţessu upp. Ţarna var fullur leikvangur af brjáluđu köllum međ fána og öskrandi upp í eyrađ á nćsta manni. Sjötíu og átta milljón manna ţjóđ á móti örríki međ ţrjúhundruđ og fjörtíu ţúsund manna ţjóđ. Getur ekki endađ vel, hugsađi ég og ćtlađi ekki ađ verđa vitni ađ slátrun í beinni.

Tuttugu mínútum síđar kveikti ég aftur á sjónvarpinu og fannst hljóđiđ bara nokkuđ gott í ţulinum og stađan á strákunum okkar virtist bara bóđ. Ég ákvađ ađ horfa áfram.

Svo koma eitt mark og skömmu síđur annađ.

Held ađ hćgindastóllinn minn sé stórskemmdur ... en af góđu tilefni.

Nú er ég ekki eins taugaveiklađur. Held ađ ég horfi á allan leikinn á móti Kósósvó.

Spái ţví ađ okkar menn vinni annađ hvort međ ţremur mörkum gegn engu - eđa á annan hátt. Sigur og ekkert annađ.

Já, er Ísland ekki besta land í heimi?

 


Bloggfćrslur 9. október 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband