Halla Tómadóttir skipar sér á bekk međ Donald Trump ...

UnknownEn ég er óneitanlega ekki stolt af ţví ađ sitjandi forseti skuli skipa sér á bekk međ einrćđisherrum eins og Mugabe.

Ţetta segir Halla Tómasdóttir, forsetaframbjóđandi, í viđtali viđ visir.is. Ekki virđist frambjóđandinn vera sérstaklega vel ađ sér í heimsmálunum. Hún ber forseta Íslands sem er lýđrćđislega kjörinn samkvćmt lögum sem sett eru af lýđrćđislega kjörnum ţingmönnum á löggjafarţingi lýđveldisins saman viđ Robert Gabriel Mugabe forseta Zimbambwe.

Mugabe ţessi er allt annađ en lýđrćđislega ţenkjandi mađur jafnvel ţótt hann hafi fyrst náđ kjöri í almennum kosningum áriđ 1980. Hann stóđ fyrir ţjóđernishreinsunum snemma á valdaferli sínum ţar sem 20.000 manns voru myrtir. Hann hefur ríkt međ spillingu, falsađ úrslit kosninga og miskunnarlaust látiđ drepa andstćđinga sína unnvörpum.

donald-trump-flickr-ccHalla Tómasdóttir setur Robert Gabriel Mugabe á sama stall og Ólaf Ragnar Grímsson. Ţessi orđ sćma ekki forsetaframbjóđanda eđa öđru upplýstu fólki.

Hún getur ekki međ nokkru móti réttlćtt orđ sín međ öđru en ţeim fjölda ára sem ţjóđin hefur lýđrćđislega kjöriđ Ólaf Ragnar í embćtti.

Röksemdafćrsla hennar er svona eins og ađ segja ađ Halla Tómasdóttir skipi sér á bekk međ öfgamönnum eins og Donald Trump. Og rökstuđningurinn; ţau eru bćđi ljóshćrđ.

Svona röksemdafćrsla gengur ekki.


Enn skrökvar Egill Helgason ...

Davíđ Oddsson var orđinn mjög heitur ađ fara í forsetaframbođ. Honum mun ekki hafa vaxiđ ţađ í augum ađ takast á viđ Andra Snć Magnason. Davíđ er náttúrlega vanur ađ fara í kosningabaráttu – og hafa sigur. Hann hefđi sett upp sparisvipinn í kosningabaráttu, ţótt hann hafi sýnt ađrar hliđar í ritstjórnarskrifum í Morgunblađinu.

 

Vinstrimenn mega skrökva, fara međ hálfsannleika eđa bara giska. Allt er ţeim leyfilegt og enginn maldar í móinn, allra síst „virkur í athugasemdum“. Ofangreint er úr pistli Egils Helgasonar á vefmiđlinum eyjan.is og auđvitađ er ţađ tóm vitleysa sem hrekkur upp úr Agli.

Ég hef ţađ hins vegar frá áreiđanlegum heimildum, raunar fleiri en einni, ađ ţađ hefur aldrei flögrađ ađ Davíđ Oddsyni ađ fara í forsetaframbođ. Ástćđan er einföld: Embćttiđ er ekki áhugavert, jafnvel ţó núverandi forseti hafi reynt ađ móta ţađ eftir eigin tilfinningum. Slíkt hefđi Davíđ Oddsyni aldrei dottiđ í hug ađ gera, hann er lögfrćđingur og ber meiri virđingu fyrir stjórnarskránni en svo. Fyrir marga ađra kann vel launađ innidjobb áhugaverđur kostur.

Hins vegar ber Davíđ ekki skođanir sínar á torg umfram ţađ sem kann ađ koma fram í skrifum hans í Morgunblađinu. Ţar af leiđandi er auđvelt fyrir vinstri menn eins og Egil Helgason ađ bera ţađ á torg sem honum hentar. Raunar er ţađ ţannig ađ Egill hefur hatast viđ Davíđ Oddsson allt frá öndverđu og sjaldnast haft eitthvađ jákvćtt um hann ađ segja.

Í ljósi ţessa ber ađ skođa skrif Egils Helgasonar um Davíđ Oddsson, ađra Sjálfstćđismenn og Sjálfstćđisflokkinn.

 


Bloggfćrslur 21. apríl 2016

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband