Grófur glćpamađur gróf sig út og skildi eftir gat

Stundum er mađur hissa á ađ börnum sé treyst til ađ skrifa fréttir í fjölmiđla. Hér er alveg undarlega rituđ frétt í mbl.is. Hún er afar stutt en villur, missagnir og klúđur eru í henni allri (feitletranir eru mínar):
 
Lögreglan í Stokkhólmi í Svíţjóđ leitar nú ađ manni sem tókst ađ flýja úr fangelsi međ ţví ađ grafa sig út. Mađurinn sat inni fyrir gróf rán og lögreglan lítur á hann sem hćttulegan glćpamann. 
Í veggnum í klefa hans fann lögreglan stórt gat sem leiddi út úr byggingunni. Ţar fyrir utan hafđi hann klippt í sundur girđingu sem umlykur fangelsiđ. Líklegast hefur hann fengiđ ađstođ ađ utan og veriđ sóttur á bifreiđ. 
Fangelsiđ sem hann flúđi úr er í svokölluđum 2. flokki öryggisfangelsa, nćsti flokkur fyrir neđan hćsta öryggisflokk. Mikill fjöldi lögreglumanna tekur nú ţátt í leitinni ađ manninum. 
 
Mađurinn (ekki fanginn) gróf sig út en sat inni fyrir gróf rán. Ţetta lyktar af nástöđu sem er alltof algeng og setur ljótan svip á jafnt ritađ mál sem talađ.
 
Löggan fann „gat“ í klefa fangans, ekki göng, holu eđa brotinn vegg. „Gatiđ“ „leiddi“ út úr byggingunni, ekki ţannig ađ göngin (holan) hafi legiđ út úr húsinu, nei hún „leiddi“ ...
 
Venjulega er girđing eđa múr í kringum fangelsi, ekki ţarf ađ tíunda ţađ. Ţađ er ţó sérstakt ađ segja ađ girđing „umlykur“ fangelsiđ. 
 
Svo mun hann (ekki fanginn) fengiđ ađstođ „ađ utan“ ... Hafi nú mađurinn veriđ sóttur ţá hefur hann vćntanlega ekki pantađ leigubíl heldur fengiđ ađstođ af öđru tagi.
 
Gera má ráđ fyrir ađ „2. flokkur öryggisfangelsis“ sé fyrir neđan fyrsta flokk og ţannig sé taliđ niđur. Ekki ţekki ég svona flokkun en finnst ţó undarlegt ađ „hćttulegur glćpamađur“ sé í „2. flokki öryggisfangelsis“. Mikiđ helv... hljóta ţeir ađ vera hćttulegir sem eru í 1. flokki „öryggisfangelsa“ í Svíţjóđ.
 
Hverjir skyldu nú leita ađ manninum (ekki flóttafanganum)? Jákvćtt er ađ „mikill fjöldi lögreglumanna hafi takiđ ţátt í leitinni. Orđalagiđ er svona eins og ađ björgunarsveit hér heima taki ţátt í leit ađ týndum fjallamanni ţegar stađan er einfaldlega sú ađ björgunarsveitin er sú eina sem leitar. Í Svíţjóđ er ţađ ábyggilega ţannig ađ eingöngu lögregla leitar ađ „hćttulegum glćpamanni“.
 
Niđurstađan er ađ ţetta er illa samin frétt. 

mbl.is Gróf sig út úr fangelsi í Svíţjóđ
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Bloggfćrslur 30. mars 2014

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband