Heill sé forseta vorum, forsætisráðherra, fjármálasjávar...

Það er sko alveg vitað mál að Jóhanna hefur farið höndum um þau mál sem brenna á okkur Íslendingum þessi misserin og með þeim afleiðingum að nú dregur úr fjölda atvinnulausra.

Hef það eftir áreiðanlegum heimildum að úr atvinnuleysinu dró mitt á milli þess að Davíð Oddsson gekk út úr Seðlabankanum og sá norski gekk inn. Á liggjandanum gerðist þannig einhver galdur og síðan tók að fjara út.

Þvílík drottins gjöf að hafa fengið hana Jóhönnu með stuðningi hans Steingríms til að ryðja honum Davíð útúr þessum Seðlabanka.

Heill sé forseta vorum, forsætisráðherra, fjármálasjávarútvegsoglandbúnaðarráðherra og ríkistjórn allri.

Skyldi hún Jóhanna nokkuð vilja verða formaður, ha?


mbl.is Dregur úr fjölgun atvinnulausra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Davíð Löve.

Farið hefur fé betra úr Seðlabankanum. Bláa höndin missir tökin. En varðandi ath.semdina áðan, verðum við að grípa til hráslagahúmors af og til. Þetta ástand er að gera alla sturlaða. Kveðja.

Davíð Löve., 10.3.2009 kl. 16:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband