12 daga kosningabarátta er ólýðræðisleg

Verður kosið 25. apríl eða ekki? Svo virðist sem einhvers konar handvöm sé í forsætisráðuneytinu. Enda ekki furða. Forsætisráðherrann er óvanur og getur ekki haft forystu um þessi mál. Verra er að ráðuneytisstjórinn er líka óvanur enda „aðeins“ vanur félagsmálaráðuneytinu.

Heyrst hefur að minnihlutaríkisstjórnin telji að tíminn til 25. apríl sé of skammur miðað við það sem hún vill gera. Í undirbúningi er fjöldi lagafrumvarpa og ætlunin er að þingið starfi til 4. apríl. Taka þarf af skarið hvort kosið verði á þessu degi eða ekki.

Þegar nánar er skoðað eru vandamálin nokkur. Sé ætlunin að kjósa áðurnefnum degi fást aðeins 12 daga, tæpur hálfur mánuður fyrir lýðræðislega æfingar, það er kynningu á framboðum, frá því að þingi lykur. Sá tími er alltof skammur.

Hvers vegna er tíminn alltof skammur.

Minnihlutastjórnin styðst við minna en helming þingmanna. Henni til stuðnings eru þingmenn Framsóknarflokksins. Þeir munu verja hana falli standi hún við gerða samninga.

Miðað við stöðu mála er þessi ríkisstjórn aðeins starfsstjórn. Hún hefur ekki leyfi til að breyta heiminum jafnvel þótt hún vilji. Og hvers vegna ætti slík minnihlutastjórn að haga sér eins og hún sé meirihlutastjórn? Einhvers konar „wannabe stjórn“.

Staðreyndin er sú að ríkisstjórn verður að haga sér miðað við aðstæður. Eina verkefni núverandi minnihlutaríkisstjórnar er að sinna efnahagsmálum, gæta að atvinnumálum og verðbólgu. Allt annað er aukaatriði, innantómt pjatt að mínu mati.

Átta vikur til kosninga mínus páskar. Þingi á að ljúka um miðjan mars í síðasta lagi. Nauðsynlegt er að framboðin hafi tækifæri til að kynna stefnu sína. Slíkt er lýðræðislegt og afsláttur af lýðræðinu er ekki í boði, hvort heldur um er að ræða minnihluta eða meirihluta þings.

Hvar er svo forseti Íslands þegar ætlunin er að gefa afslátt af lýðræðislegri starfsemi fyrir þingkosningar? Ég óska eftir því að hann taki fram fyrir hendurnar á ríkisstjórninni í þessu máli. Hann hefur gert það áður af ómerkilegra tilefni.


mbl.is Ekki hægt að hefja utankjörstaðaatkvæðagreiðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Glókollur og Imelda á Álftanesi eru með þetta allt í hendi sér.  Annars finnst mér í lagi að framlengja þessu aðeins til að gefa fleiri hreyfingum svigrúm til að mynda framboð.  Hluti leikfléttunnar hjá gömlu flokkunum til að halda í völdin er að hraða kosningum til að koma einmitt í veg fyrir þetta.

Merkilegt líka að sjá hvernig skoðanakannanir eru skrumskældar í þessari viðleytni, þar sem þeir er ekki taka afstöðu til ríkjandi flokka eru gerðir marklausir og aðeins reiknað hlutfall þeirra sem benda á einhvern flokkanna. Þó er oft helmingur eða meira, sem fær sig ekki til að taka afstöðu með flokkunum, sem er jú hrópandi vantraust.  Skrifaði um þessar blekkingar á mínu bloggi.

Það hefur ekkert breyst með blekkingar og manipúlasjónir í heimi stjórnmálanna eins og þú dregur svo vel fram hér. Við verðum að láta þá vita að við sjáum í gegnum þær, því þeir halda að þjóðin sé illa gefin, sem sést af þessari vanvirðu og yfirlæti.

Gerum svo Njörð P. Njarðvík að forseta.

Jón Steinar Ragnarsson, 28.2.2009 kl. 19:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband