„Tveir flokksgæðingar“

Það er framlag hans til stöðugleikan í landinu," sagði Steingrímur og bætti við að svo virtist sem flokkurinn hafi meiri áhyggjur af atvinnu tveggja flokksgæðinga en atvinnuleysi 13-14 þúsund manns. 

Svona er þetta með hann Steingrím. Hann getur ekki haldið grímunni, missir sig einatt í æsingnum. Í gær virtist hann vera hinn rólegi og yfirvegaði stjórnmálamaður sem vildi fá Val Valsson og Magnús Gunnarsson til að halda áfram sem formenn tveggja bankaráða.

Í dag er Steingrímur eins og hann á að sér að vera og kallar þá Val og Magnús „flokksgæðinga“.

Þar með vitum við það.

Jóhann er búin að lýsa því yfir að það þurfi að hreinsa til í bankaráðunum og Steingrímur vill „flokksgæðinga“ Sjálfstæðisflokksins út. 


mbl.is Niðursveiflan meiri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Þráinsson

Ég held að Steingrímur hafi nú frekar verið að vísa til þeirra kumpána Davíðs og Eiríks í Seðlabankanum.

Tómas Þráinsson, 12.2.2009 kl. 16:28

2 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Bestu þakkir fyrir innlitið, Tómas.

Getur verið rétt hjá þér, en Davíð ku vera Sjálfstæðismaður, en Eiríkur hefur aldrei verið fokksbundinn og aldrei tekið þátt í neinu flokksstarfi eftir því sem hann segir sjálfur.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 12.2.2009 kl. 16:44

3 Smámynd: Tómas Þráinsson

Ég veit ekki hvort Eiríkur hafi verið í einhverju flokksstarfi, það er vonandi bara að hann sé ekki að ljúga einhverju um það. Svo er náttulega möguleiki að hann hafi verið í ungmennahreyfingu einhvers flokksins og náð sér í góð sambönd en ekki haldið svo áfram að starfa í flokknum eftir að unglingastarfinu lauk. Það má svo sem alltaf pæla endalaust í þessu, ég vil bara losna við þá báða út til að hreinsa Seðlabankann og geta byrjað upp á nýtt.

Tómas Þráinsson, 14.2.2009 kl. 15:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband