Einskis verður pópulismi

Hvað skyldu margir styðja útvarpsstjóra? En veðurstofustjóra, orkumálastjóra, forstjóra Nýsköpunarmiðstöðvar, forstjóra Byggðastofnunar, bankastjóra Nýja Glitnis, forstjóra Tryggingastofnunar eða fangelsismálastjóra?

Það er auðvitað út í hött að búa til skoðanakannanir um einstaka embættismenn. Það gera varla aðrir fjölmiðlar en þeir sem eiga undir högg að sækja og gera hvað sem er til að fá pínulítið áhorf.

Næst skoðar Stöð 2 hvort ekki sé tímabært að Björgúlfur Thor Björgúlfsson afsali sér íslenskum ríkisborgarrétti. Þá er ekki úr vegi að kanna hvort Jón Ásgeir Jóhannesson eigi ekki að selja allar eignir sínar og afhenda ríkinu.

Nei, svona populismi skilar engu. Væri ekki ráð að fréttastofa Stöðvar 2 legði frekar fé í fleiri Kompásþætti. Þar virðast þeir vera að gera góða hluti.


mbl.is 10% styðja Davíð í embætti seðlabankastjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Chemical

Munurinn á þessum stjórum og seðlabankastjóra er að vanhæfni hans mun snerta alla landsmenn og afkomu þeirra um ókomna áratugi. Þess vegna á þessi könnun fullan rétt á sér.

Chemical, 28.10.2008 kl. 21:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband