Lifi góða fólkið

Af gefnu tilefni vil ég taka það fram að ég mun ekki syngja, dansa eða leika á hljóðfæri í Eurovision í Ísrael. Ekki heldur mun ég leggja til tónverk í forkeppnina á Íslandi. Þar að auki mun ég staðfastlega neita að vera áhorfandi að kepninni sjálfri í Jérúsalem eða í sjónvarpi.

Mér leiðist Eurovision, finnst hún einkar tilgerðarleg.

Og fyrst ég er byrjaður þá er eins gott að taka það fram að ég mun ekki leika með landsliðinu í HM í Rússlandi og ætla ekki að fara á leiki íslenska landsliðsins né annarra liða. Viðurkenni þó að ég mun hugsanlega horfa á einhverja leiki með öðru auganu - alls ekki meir.

Mér leiðist ekki fótbolti en Pútín er mér ekki að skapi.

Að lokum vil koma því á framfæri að þó ég muni fara til Bandaríkjanna á þessu ári má síst af öllu túlka það sem stuðning við stefnu Trump, hvorki í innanríkismálum né utan.

Mér leiðist Trump.

Og fyrst ég er byrjaður á þessu þá ber þess að geta að ég fer til Berlínar í næsta mánuði en þrátt fyrir það hef ég ekki breytt um skoðun á ESB, er á móti því að Ísland gangi inn í sambandið.

Mér leiðist ESB en hef ég ekkert á móti Evrópubúum.

Vinstri maður sem ég þekki doldið segir tvennt fara gríðarlega mikið í taugarnir á sér. Annars vegar eru það kynþáttafordómar og hins vegar svart fólk.

Lifi fjölbreytileikinn og góða fólkið.

 


mbl.is Daði ekki til í að keppa í Ísrael
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

En hversvegna ekki "veruleikafyrta fólkið".
Það hatar rasista og Gyðinga um leið !embarassed ó
Það elskar fjölmenningu sem þeirra bestu vinir, múslímar hata. ó
Í kóraninum segir að múslímar eigi að hata ekki múslima, sem þeir gera á laun og þar með talið "veruleikafyrta fólkið".
Svo er ég ekki viss um að þetta fólk grípi háðið "góða fólkið".

valdimar jóhannsson (IP-tala skráð) 15.5.2018 kl. 16:20

2 Smámynd: Jónatan Karlsson

Já þær eru sannarlega undarlegar andstæðurnar, eins og maður nokkur sagði:

Að án helfararinnar væri Ísrael ekki til.

Jónatan Karlsson, 16.5.2018 kl. 08:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband