Þingflokkurinn setur Sjálfstæðisfólk í vonda stöðu

Í þau fimmtíu ár sem þessar stórstígu framfarir hafa átt sér stað hefur baráttan verið stöðug. Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið í forystuhlutverki í innleiðingu framfara í íslenskum atvinnuháttum. Í dag stendur yfir enn ein orrustan um nýtingu orkuauðlinda til eflingar íslensku samfélagi, aukna verðmætasköpun, aukin tækifæri og fjölbreyttari störf fyrir ungt fólk. Það má segja að sömu öfl takist á nú og hafa tekist á um þessi mál síðustu áratugi. Það er mikilvægt að almenningur geri sér grein fyrir þeim mikilvægu ákvörðunum sem við stöndum frammi fyrir.

Við erum víst í sama Sjálfstæðisflokknum, ég og Jón Gunnarsson, þingmaður suðvesturkjördæmis. Hann skrifar grein í Morgunblað dagsins, langa grein, og nefnir marga til sögunnar eflaust til þeirrar réttlætingar virkjana sem hann stendur fyrir. Hér fyrir ofan er klausa úr greininni.

Fimmtíu ár er langur tími og margt hefur breyst til hins betra á þeim árum. Eðlilega breytast viðhorf og nýjar kynslóðir koma til sögunnar sem hafa alist upp við önnur gildi en forfeðranna. Þó svo að flestir átti sig á gildi raforkunnar fyrir þjóðina og að brýnt sé að virkja eru skoðanir fólks nú orðið skiptar hvað varðar umhverfismál. 

Vænt er það sem vel er grænt“, var almennt viðhorf hér áður fyrr. Landið var fyrst og fremst metið til ræktunar. Þessi skoðun hefur látið undan síga vegna þess að aðrar atvinnugreinar hafa komið til auk þess sem sívaxandi hluti þjóðarinnar stundar útiveru, ferðalög og náttúruskoðun sér til andlegrar og líkamlegrar heilsubótar. Þetta fólk er án nokkurs efa hlutfalslega jafn fjölmennt í Sjálfstæðisflokknum sem í öðrum flokkum. Við erum Sjálfstæðifólkið sem vill fara varlega í orkunýtingu vegna þess að við viljum ekki spilla landinu.

Jóni Gunnarssyni, þingmanni, kann að koma það á óvart að við erum fjölmargir sjálfstæðismennirnir sem munum standa upp og verja ýmsa staði sem ætlunin er að virkja. Okkur skiptir það litlu þó hann reyni að gera málin flokkspólitísk. Ég lít ekki á þá sem vilja verja einstaka staði á landinu með þeim augum. Þeir eru fjölmargir sem vilja verja Langasjó, Hólmsárlón og Hagavatn, svo dæmi sé tekið. Og gleymum ekki víðernum landsins sem óðum minnka.

Vel má vera að síðasta ríkisstjórn hafi verið með allt niðrum sig vegna rammaáætlunar, breytt henni án nokkurs samráðs og síðan lagst gegn breytingum núverandi ríkisstjórnar. Um það snýst ekki málið. Aðalatriðið er landið okkar. Enginn stjórnmálamaður, þingflokkur eða ríkisstjórn getur krafist þess að við fylgjum honum í blindni. 

Krafa dagsins er hins vegar sú að rétt sé staðið að málum. Sýn Einars Benediktssonar á fallvötnin er ekki sú sem við höfum í dag, tímarnir hafa breyst og viðhorfin líka.

Jón Gunnarsson vitar til Jónasar Hallgrímssonar sem sagði einhvern tímann:

Óskandi væri að Íslendingar færu að sjá, að það er aumt líf og vesælt, að sitja sinn í hverju horni og hugsa um ekkert nema sjálfan sig, slíta í sundur samfélag sitt og skipta sundur afli sínu í svo marga parta, sem orðið getur, í stað þess að halda saman og draga allir einn taum. Hugsa fyrst og fremst um heiður og velgengni landsins, sem öllum góðum Íslendingum ætti þó að vera í fyrirrúmi.

Þessum orðum má allt eins snúa að Jóni sjálfum og spyrja hvers vegna hann hafi forystu um þá vegferð að slíta sundur friðinn í stað þess að velja farsælli leið að samstarfsmönnum sínum á þingi og þjóð sinni og hugsa um heiður og velgegni landsins.

Hins vegar er Jón Gunnarsson ekki einn því að baki hans stendur þingflokkur Sjálfstæðisflokksins og það er hann sem hefur sett okkur marga flokksmenn í slæma stöðu, svo slæma að varla er hægt að verja stefnu hans hvað varðar virkjanir. Aungvar þakkir kann ég honum fyrir það.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Frábært innlegg hjá þér Sigurður, ég tek heilshugar undir þetta.  

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.5.2015 kl. 15:51

2 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Jón Gunnarsson á ekkert erindi á Alþing Íslendinga. Óskiljanlegt að sjálfstæðisfólk á Suðurlandi skuli velja hann á lista frambjóðenda. Vandi flokksins er að meginparti of lítil endurnýjun á fulltrúum. Meira að segja LÍÚ hefur gengið í endurnýjun lífdaga til að losna við slæma ímynd. En ekki Sjálfstæðisflokkurinn!! Hvað veldur Sigurður?

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 26.5.2015 kl. 17:25

3 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Jón Gunnarsson á full erindi inn á Alþingi, rétt eins og margir aðrir. Ímynd Sjálfstæðisflokksins mætti vera betri, það er satt. Svo má lengi deila um það hvers vegna hún er ekki nógu góð. Ég hef nefnt nokkrar skýringar og hef fleiri á takteinum.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 26.5.2015 kl. 17:50

4 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Gódur og tharfur pistill. Vonandi ratar hann fyrir augu Jóns Gunnarssonar og fleiri, sem ad málinu koma.

Gódar stundir, med kvedju ad sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 26.5.2015 kl. 18:22

5 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Tek heilshugar undir þessi orð þín, Sigurður. Svo ruglaður er Jón Gunnarsson að hann skrifar grein sem á að leiða að því líkur að Jónas Hallgrímsson hefði verið harður virkjanasinni og talsmaður stóriðju ef hann væri uppi á okkar tímum! 

Ég minni á niðurstöður tveggja skoðanakannana með tæplega áratugs millibili þar sem í ljós kom að stærsti flokkspólitíski hópurinn að höfðatölu, sem var á móti Kárahnjúkavirkjun og vill að miðhálendið verði einn stór þjóðgarður, - var fólk sem sagðist jafnframt kjósa Sjálfstæðisflokkinn! 

Margir vinstri menn verða hvumsa og hissa þegar ég greini þeim frá þessu og sömuleiðis þeir Sjálfstæðismenn sem Albert Guðmundsson spyrti saman við það, sem hann kallaði Flokkseigendafélagið. 

Hannes Hólmsteinn útskýrði þetta fyrirbæri á þann hátt að hinn dæmigerði Sjálfstæðismaður vildi hafa sterka leiðtoga, sem sæu um það að hægt væri að græða á daginn og grilla á kvöldin í friði. 

Ómar Ragnarsson, 26.5.2015 kl. 22:55

6 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Þekki ekki Jón Gunnarsson persónulega. Myndi þó hvorki kalla hann né aðra ruglaða. Fólk má hafa sína skoðun rétt eins ég mína og það innan sama stjórnmálaflokksins. Er sannfærður að innan Sjálfstæðisflokksins er fjöldi manns sama sinnis og ég. Ég er sannfærður um að málstaður Jóns myndi ábyggilega lenda í minnihluta væru greidd atkvæði um hann innan flokksins.

Af kynnum mínum af Hannesi Hólmsteini held ég að hann sé langt frá því þeirrar skoðunar að einn maður eigi að stýra öðrum, það samrýmist einfaldlega ekki frjálshyggjunni. Menn eru þó frjálsir að leggja út af orðum hans eins og andinn blæs þeim í brjóst.

Góð stjórnvöld fara ekki um með látum. Hávaðinn í Jóni Gunnarssyni truflar mig sem og margt af því sem hann stendur fyrir, rétt eins og hávaðinn í svokölluðum minnihluta á Alþingi. Þetta fólk stendur ekki fyrir jákvæðri stjórnmálaumræðu og ætti að skammast sín.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 26.5.2015 kl. 23:49

7 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Rétt einu sinni snýr Ómar út úr.- -   Jón frændi minn byrja á: Sagan í stuttu máli og minnir á hve hart var tekist á um virkjanakosti,á sjöunda áratug seinustu aldar til að auka fjölbreytni í íslensku atvinnulífi.--(Raunar byrjaði baráttan um betri lífsafkomu miklu fyrr/áður en virkjanakostir komu til.)- Hann heldur áfram og vitnar í blaðið Fjölni sem gefið var út 1835  þar sem þjóðskáldið okkar Jónas Hallgrimsson einn af útgefendum,skrifaði: 

"Óskandi væri að íslendingar færu að sjá,að það er aumt líf og vesælt,að sitja sinn í hverju horni og hugsa um ekkert nema sjálfan sig,slíta í sundur samfélag sitt og skipta sundur afli sínu í svo marga parta,sem orðið getur,í stað þess að halda saman og draga einn taum. Hugsa fyrst og fremst um heiður og velgengni landsins,sem öllum góðum Íslendingum ætti þó að vera í fyrirrúmi" Þessi hvatning höfuð skáldsins á við hvaðeina sem við tökum okkur fyrir hendur,sem þjóð. Hvort Ómar sér það eigi betur við stjórnarandstöðuna er hans einka rugl.

Helga Kristjánsdóttir, 27.5.2015 kl. 01:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband