Tveir stórir skjálftar á botni Kleifarvatns

KleifarvatnJarðskjálftahrina hefur verið í og við Kleifarvatn í hálfan sólarhring. Hún byrjað með nokkuð stóru höggi, skjálfta upp á 2,8 stig rétt fyrir klukkan tíu í gærkvöldi. Síðan varð nokkurt hlé, þó með örfáum litlum skjálftum.

Seinni skjálftinn varð um kl. 7:30 í morgun og er líka um 2,8 stig.

Báðir skjálftarnir eru í suðurhluta Kleifarvatns eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.

Skjálftarnir eru að öðru leyti flestir í og við suðurhluta vatnsins. Raunar nokkuð fjarri Krýsuvík og því rangt að kenna þá við þann stað. Þetta eru skjálftar við og í Kleifarvatni, svo öllu sé nú til haga haldið.


mbl.is Jarðskjálfti við Krýsuvík í morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband