Olíuþjófar undir Vífilsfelli

Vita lesendur hvers vegna við, sem viljum ganga á Vífilsfell, komumst ekki lengur að fjallinu, heldur þurfum að ganga nokkuð langa leið?

Jú, vegurinn inn í Jósefsdal er ónýtur vegna viðhaldsleysis en við mynni dalsins er ein vinsælasta uppgönguleiðin á fjallið. Aðra leið er hægt að fara en hún liggur inn í malarnámið alræmda sem er undir fjallinu, norðaustanverðu. Þar hafa verktakarnir tekið upp á því að loka veginum við Suðurlandsveg vegna þess að lengst inni í námunni eru vélar og tæki og glæpamenn stela af þeim olíu. 

Til þess að stemma stigu við þessum ræningjalýð hefur verið gripið til þess ráðs að loka veginum. Þá þurfa misyndismennirnir að bera olíuna frá tækjunum og út að veg. Þessu nenna þeir auðvitað ekki.

En hugsið ykkur að ekki skuli vera hægt að skilja vélar og tæki eftir í friði fyrir þessum lýð.

Og við látum okkur lynda að ganga þessa tæpu tvo kílómetra að fjallinu. 


mbl.is Stálu 600 lítrum af olíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Auðvitað ætti að leggja veg alveg upp á topp, þá þyrftirðu ekki að ganga neitt, bara opna hurðina á bílnum, draga djúpt inn andann og bruna svo aftur niður!

Oh! ætli svona fjallgeit eins og þér muni nokkuð um skitna 2 km eða hvað?

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 18.6.2013 kl. 17:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband