Lagabálkur ESB á leið í íslensk lög

Umræða um að þjóðin fái að kjósa um aðildarsamning er því blekking ef búið er að innleiða allan lagabálk ESB í íslenskt lagasafn áður en slík kosning á sér stað.

Hvað ætla stjórnvöld að gera ef þjóðin segir nei? Ætla þau að vinda ofan af öllum lögunum sem breytt var?

Það er aðeins eitt sem kemur í veg fyrir slíka ólýðræðislega lagasetningu sem þessi þvingaða aðlögun krefst, það er að þjóðin fái að kjósa um hvort hún vilji ganga í ESB eða ekki, áður en lengra er haldið.

Úr grein Sigurbjörns Svavarssonar í Morgunblaðinu í morgun.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Upptaka á lögum og reglum ESB er framsal fullveldis. Ef þetta er að gerast, þá er verið að þverbrjóta stjórnarskrá, jafnvel þótt þingið skrifi undir þetta. Stjórnin hefur ekki umboð til þessa, hvað þá stjórn sem nú er í augljósum minnihluta.

Jón Steinar Ragnarsson, 30.1.2013 kl. 08:48

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta er að gerast og það þarf að stöðva eins og skot.  Daglega heyrist mér á þeim sem til þekkja, eru teknar upp nýjar reglur frá ESB, þetta er óásættanlegt, þegar ég spyr hvað "kíkja í pakkann" vilji gera, loka þeir eyrunum.  Þeir trúa því ekki að það sé enginn pakki til að kíkja í, segja þetta vera bull í Jóni Bjarnasyni og Birni Bjarna, þegar ég bendi þeim á að þetta komi beint frá ESBskýrslu, loka þeir eyrunum.  Veit ekki hvað þarf til, er Össur og Jóhanna svo gjörsamlega búin að heilaþvo fullt af góðu fólki?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.1.2013 kl. 10:17

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Þessi ríkisstjórn skapar ólíðandi fordæmi,lögleysur út um allar grundir,ef þær eru þeim þóknanlegar.

Helga Kristjánsdóttir, 30.1.2013 kl. 11:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband