Óþarfa jarðrask eða þarft ...?

úlfarsfell„Ekkert „óþafa jarðrask“ á Úlfarsfelli“, segir kaldhæðnislega í fyrirsögn í frétt í Morgunblaðinu í morgun. Og á myndinni eru verktakar á kafi í jarðraski.

Og svo er frá umsögn heilbrigðisteftirlis borgarinnar „að gæta þurfi að »óþarfa jarðraski,« að umhverfisspjöll verði ekki á framkvæmdatíma »og að frágangur framkvæmdasvæða sé í sama eða betra horfi en fyrir var«.“.

Allt fellur þetta að sama brunni í skemmtiferð Jóns Kristinssonar, borgarstjóra, og Besta flokks hans. Engin stjórnun, ekkert skipulag, engin forusta, engin eldmóður. Aðeins gott innistarf og lítið að gera.

Borgin er orðin sóðaleg, henni er illa við haldið og frekar ljót ásýndum. Og svo kemur þetta í ofanálag. ER ekki kominn tími til að skemmtikraftarnir í stjórn borgarinnar segi hreinlega af sér? 


mbl.is Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Hefurðu kynnt þér grjótnámið í mynni Seljadal Sigurður? Þar er dæmi um framkvæmdir fyrirtækis sem sýnir á sér tvær hliðar. Í ársskýrslum er rekstur fyrirtækisins „skreyttur“ með svonenfdu grænu bókhaldi. Sem sagt vistvæn innkaup og áhersla lögð á endurvinnslu pappírs og þ.h. á skrifstofu.

Hins vegar er umgengni í grjótnáminu verulega áfátt. Sprengt hefur verið eitt mesta náttúruundur, stuðlabergi sem í ljós kom við gröft, mélinu smærra. Ekki léðu talsmenn fyrirtækisins máls á því að hlífa því og nýta betur það grjót sem brotið hefur niður.

Fyrir aldamótin benti Ómar Ragnarsson þáverandi fréttamaður á RÚV á þetta og fyrir rúmum áratug ritaði eg grein í Morgunblaðið um þetta grjótnámsmál. í ljós komu verulegir annmarkar í samskiptum stjórnsýslu Mosfellsbæjar við stjórnvöld Reykjavíkurborgar. Þrátt fyrir góð loforð um að þetta mál væri tekið af röggsemi, hefur ekkert gerst.

Bestu kveðjur!

Guðjón Sigþór Jensson, 25.5.2012 kl. 09:03

2 Smámynd: Eyjólfur Jónsson

Ég hafði samband við landmælingar þann 15/5 og setti þair upp rétta mynd að Úlfarsfelli aftur. Voru þeir búnir að "sudda út" fellið að setja gulan lit í staðin. Var þetta lagað eins og skot og mogginn setti fréttina inn aftur. Núna er fréttin farin og "gömul" mynd hjá Landmælingum af fellinu komin í stað þeirra sem var. Að tala um  KGB takta er ansi nærri og er þetta einkennilegt í svona litlu "skítamáli". Er siðferði manna orðið svona brenglað? Er ekki hægt að framkvæma neitt án þess að svindla?

Eyjólfur Jónsson, 25.5.2012 kl. 11:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband