Jarðskjálftar við Tungnakvíslajökul

Það vekur athygli leikmanna eins og mín hversu viðvarandi jarðskjálftar, þó frekar litlir, eru við upptök Tungnakvíslajökuls. Sá fellur til úr Mýrdalsjökli til vesturs. Þarna hafa verið jarðskjálftar í lengri, lengri tíma. Það þýðir á leikmannamáli ábyggilega meira en tvö ár.

Þannig jarðskjálftar voru líka í nokkuð langan tíma við upptök Steinsholtsjökuls en sá fellur til norðurs úr Eyjafjallajökli. Þeir enduðu að lokum í eldgosi.

Ekki eru þó allir jarðskjálftar fyrirboðar um eldgos. Finnst mér þó ansi mikið íshrun úr Tungnakvíslajökli og ári lengi. En hvað vitum við leikmenn? 


mbl.is Skjálftar mældust við Kötlu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Er ekki kominn tími á Heklu, eftir því sem sumir segja?

Var ekki annars jarðskjálfti fyrir norðan fyrir stuttu síðan, man ekki alveg hvar? Ég er meira að velta fyrir mér skjálftanum þar, heldur en þessum. En ég hef ekkert vit á þessu, bara getgátur. 

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 3.6.2011 kl. 08:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband