Hættið snertiútgáfu Moggans innan þriggja ára

Ekkert er ókeypis, ekki einu sinni vefsíður. Öllu fylgja útgjöld og þess vegna á Morgunblaðið að rukka fyrir aðgang að vefútgáfu sinni.

Mogginn á að gera eins og sjónvarpsstöðvar sem bjóða upp á afruglara. Mogginn á að bjóða upp á iPad. Selja hann á góðu verði til áskrifenda. Til dæmis getur hann fylgt þriggja ára áskriftartilboði sem auðveldlega er hægt að útfæra nánar. Þannig fær Mogginn trygga áskrifendur og þeir fá iPad á góðu verði. Geta endurnýjað eftir t.d. þrjú ár og fengið nýja útgáfu af þessu fína tæki. Umhverfislega afar væn hugmynd.

Núverandi mbl.is á að þrengja niður í örstuttar fréttir og upplýsingar. Allar nánari og betri fréttir og upplýsingar eiga að vera á góðri netútgáfu og fyrir hana á að borga.

Og svo kemur rúsínan í pylsuendanum. Morgunblaðið á að hætta að koma út á prentuðu formi eftir t.d. þrjú ár. Hvers vegna að eyða pappír og fylgihlutum í prentaða útgáfu þegar hægt er að gera þetta miklu ódýrara, einfaldara og þægilegra, bæði fyrir útgefandann og neytandann?

Trúið mér. Ég er líklega búinn að vera netáskrifandi að Morgunblaðinu í næstum tíu ár. Nú er svo komið að mér finnast svökölluð „snertiútgáfa“ dagblaða vera bæði skítug og leiðinleg. Sakna þeirra alls ekki.

Geti ég, íhaldsmaðurinn, vanist á að nota netútgáfu af tímaritum og dagblöðum þá geta það allir. 


mbl.is Áskriftargjald á vef New York Times
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Guðjónsson

Lesendahópur blaðsins er 55 plús og mikill lestur

hjá 70 plús og þá þarf blaðið að gefa snertiskjái eða tölvu með. Það þýðir að fólk fer bara í erlend blöð enda greina þau betur frá ástnadinu hér en innlendir miðlar. Held að framtíð Morgunblaðsins verði 1 prentað blað í viku og svo útfarþjónusta.

Einar Guðjónsson, 29.3.2011 kl. 00:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband