Getur konan ekki talað við flugumanninn?

Það er ekkert við það að athuga þó flugumaður bresku lögreglunnar í umhverfisverndarsamtökunum hafi komið upplýsingum um íslensk málefni til yfirboðara sinna og þeir til íslensku lögreglunnar. Skil raunar ekki hvers vega þingmenn Hreyfingarinnar eru svona uppteknir af þessum vesalings flugumanni. Hreyfingin virðist raunar öll upptekin af einhverjum smáatriðum sem síðan eru pumpuð upp í stórmálalíki.

Og hafi þingkonan fengið sendingar frá þessum fyrrum flugumanni er þá ekki hægur vandi fyrir hana að spyrjast fyrir um það hvort hann hafi kjaftað frá öllum þessum uppákomum í kringum Saving Iceland?

Í stað þess að blaðra þindarlaust um allt og ekkert út í loftið væri best að þingmaðurinn og flugumaðurinn hefðu beint samband og slepptu okkur hinum við þetta allt saman.


mbl.is Vill rannsaka hvort flugumaður hafi aðstoðað lögreglu hér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Flugumenn hafa verið á ferðinni a.m.k. 1000 ár í íslenskum heimildum. Þeir voru morðingjar sem myrtu á laun.

Eigi minnist eg þess að flugumenn hafi verið á ferðinni sem njósnarar eða í öðrum leynilegum sendiferðum nema sem laumumorðingjar.

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 23.1.2011 kl. 18:33

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Er ekkert við það að athuga þó íslenska lögreglan hafi hugsanlega verið í samkrulli við erlent ríki um að njósna um einkahagi fólks á Íslandi?

Í hvaða heimi býr fólk eiginlega? Það er eins og enginn fatti hversu alvarlegt það er að erlent ríki skuli hafa sent hingað njósnara til að hafa eftirlit, meðal annars með íslenskum ríkisborgurum. Á Íslandi er það EINGÖNGU lögreglan sem hefur lagaheimild til slíkrar starfsemi og þá aðeins með opinberum dómsúrskurði þar að lútandi. Án slíkrar heimildar eru njósnir um einkahagi fólks á Íslandi kolólöglegar, auk þess sem slíkt felur í sér gróft brot á fullveldi íslenska ríkisins ef njósnarinn er á vegum annars ríkis. Hafi lögreglan vitað af erlendum njósnara á íslensku yfirráðasvæði er mesti skandallinn að hann skuli ekki hafa verið handtekinn og vísað úr landinu umsvifalaust. Hafi einhver íslenskur ríkisborgari vitað af njósnaranum og jafnvel aðstoðað hann við iðju sína, þá eru það enn fremur landráð skv. 10. kafla almennra hegningarlaga!

Miðað við þessa, sem og aðra framkomu breskra yfirvalda gagnvart hagsmunum íslenska ríkisins undanfarin misseri, hlýtur að vekja furðu að ekki sé löngu búið að gera breska sendiherrann og allt hans fylgdarlið brottrækt. Það sem ríður mest á er hinsvegar að rannsakað verði hvort umræddur njósnari hafi á einhverjum tímapunkti borið vopn hér á landi, því ef svo er felur það í sér stríðsverknaði ("act of war") sem samkvæmt 5. grein stofnsáttmála NATO kallar á viðbrögð ekki eingöngu frá Íslandi heldur bandalagsþjóðunum öllum. Með öðrum orðum þá væri komin upp sú einkennilega staða að Bretland væri komið í stríð við ekki bara sjálft sig heldur allar svokallaðar "vinaþjóðir" sínar. Bresk stjórnvöld hafa reyndar lengi verið í óopinberri styrjöld gagnvart þjóð sinni og reyndar flestum öðrum, en neita þó ávallt að viðurkenna það.

Guðmundur Ásgeirsson, 23.1.2011 kl. 18:48

3 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Veit eiginlega ekki hvernig ég á að svara þér, Guðmundur. Það er vandlifað í henni veröld, segi ég bara, og bendi til viðbótar á þessa frétt sem ég fann á visir.is í morgun:


Aðgerðarsinnar af kvenkyni ætla að mótmæla fyrir utan Scotland Yard í Bretlandi í dag og krefjast þess að fá nöfn allra lögreglumannanna sem fóru sem flugumenn inn í samtök þeirra.

Í ljós hefur komið að einhverjir af flugumönnunum sváfu hjá umhverfisverndarsinnunum. Konurnar segjast hafa verið misnotaðar af lögreglunni. Meðal þeirra sem komu sér fyrir í röðum aðgerðarinnanna var Mark Kennedy, sem mótmælti meðal annars á Íslandi.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 24.1.2011 kl. 09:02

4 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Athyglisverð frétt. Þakka þér fyrir ábendinguna Sigurður, nú er hægt að bæta einu afbroti á listann: kynferðislegri misbeitingu.

Finnst einhverjum þetta í alvöru talað vera í lagi?

Guðmundur Ásgeirsson, 24.1.2011 kl. 18:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband