Gamla brúin traustari en sú nýja?

Óneitanlega veltur maður því fyrir sér hvers vegna gamla brúin stenst flóðið en ekki sú nýja. Sú gamla var byggð á fjórða áratugnum en sú nýja tekin í notkun í lok síðustu aldar. Gamla brúin er aðeins styttri en sú nýja.

og nú má aka yfir gömlu brúnna en þeirri nýju var bjargað með því að rjúfa veginn við hana. Þetta er nú bara eitthvað undarlegt. 


mbl.is Umferð takmörkuð um brúna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: eir@si

Ég hef nú reyndar ekki séð fréttir um að nýja brúin hafi skemmst.  Hins vegar þá eru vegir að henni væntanlega hannaðir þannig þeir fara á undan brúnni.  Svo voru þetta nú líka viljandi skemmdir á veginum við brúnna til að minnka líkurnar á að hún færi.

Ef flóðið hefði orðið stórt þá finnst mér líklegt að gamla brúin hefði farið á undan þeirri nýju.

eir@si, 16.4.2010 kl. 12:18

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það er ekki enn búið að loka skörðunum sem gerð voru í veginn beggja vegna brúar. Þar sem ekki er hægt að aka að brúnni er hún auðvitað úr leik, þótt sjálf brúin hafi ekki skemmst.

Var ekki fyrst og fremst gripið til gömlu brúarinnar til að koma mjólkinni frá bændum?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 16.4.2010 kl. 12:59

3 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Er ekki nýja brúin bara of stutt?

Annars held ég að Axel Jóhann hafi lög að mæla. Ef veginn vantar að brúinn, þó ekki væri nema öðrum megin frá, en gamla brúin er enn vegtengd, sýnist eindregið að nota heldur þá vegtengdu fyrir þann 12 tonna flutning sem leyfður var.

Sigurður Hreiðar, 16.4.2010 kl. 15:51

4 Smámynd: Theódór Gunnarsson

Ég hef einmitt verið að hugsa á svipuðum nótum.  Mér finnst dálitið undarlegt að það hafi þurft að rjúfa skörð í veginn til að bjarga nýju brúnni -og sumir hafa allt að því fullyrt að þessar ráðstafanir hafi einmitt bjargað brúnni - en sú gamla stendur keik án þess að þurft hafi að rjúfa veginn að henni.  Þetta vekur mann óneitanlega til umhugsunar.

Theódór Gunnarsson, 16.4.2010 kl. 16:11

5 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Bestu þakkir fyrir innleggin. Sýnist að eitthvað sé að fyrst aðstæður við gömlu brúna séu betri en við þær nýju.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 16.4.2010 kl. 16:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband