Gvöđ hvađ góđa fólkiđ er ossalega gott

Hann er alltaf kallađur Gísli GísliMarteinn, aldrei nefndur međ föđurnafni. Svona eins og Erró og Káinn sem mađur vissi ekki hvađ hétu fyrr en komiđ var fram á fullorđinsár. Ólíkt listamönnunum er hinn fyrst nefndi svo oft í fjölmiđlum ađ enginn fer í grafgötur viđ hvern er átt. Mađur hreinlega kemst ekki hjá ţví. Hann er hreinlega alltaf í viđtölum, gefandi afar gáfulegar yfirlýsingar sem viđ, almenningur súpum hveljur yfir. Núna síđast í helgarblađi Fréttablađsins.

Nú er hins vegar alveg nóg komiđ enda vita landsmenn svo mikiđ um Gísla ţennan ađ ţađ er fariđ ađ valda sálrćnum skađa á meirihlutanum.

Í sannleika sagt er ég orđinn ţreyttur á Gísla Marteini og öllu hinu frćga fólkinu sem tröllríđa fjölmiđlum. Fólkinu sem er í sjónvörpunum, útvörpunum, og pöpulli telur ţá „elskađa og dáđa“ fjölmiđlamenn. Međal ţeirra eru litlu fréttastelpurnar og litlu fréttastrákarnir sem ráđa fullkomlega viđ eitt tíu orđa „uppistand“ í beinni útsendingu í fréttatíma. Til viđbótar geta ţau líka sagt „viđ kveđjum svo héđan frá Karphúsinu“, og bćta viđ ógnargáfulegum svip.

„Ja, hérna“, segir ţá fréttaţulurinn í ósvikinni ađdáun, og bćtir svo viđ: „Og nú ađ allt öđru ...“ Rétt eins og viđ hérna megin viđ skjáinn eigum ţađ á hćttu ađ rugla saman fréttum úr Karphúsinu viđ eitthvađ „allt annađ“. 

Víkjum aftur ađ frćga og góđa fólkinu. Hvers vegna í ósköpunum veit ég hvar ţessi Gísli Marteinn á heima, hvernig hann ferđast um, hvar hann vinnur, hver konan hans er og fleira tilgangslausar stađreyndir. Ég bađ ekki um ţetta en ţađ hefur engu ađ síđur síast inn.

Ţetta er mađurinn sem er eđa er ekki í Sjálfstćđisflokknum. Hann er besti vinur Dags B. Eggertssonar, borgarstjóra, ţiđ vitiđ mannsins sem undirritar ekki skjöl án ţess ţess ađ tekin sé mynd af athöfninni og hún birt í fjölmiđlum.

Gísli Marteinn var borgarfulltrúi fyrir Sjálfstćđisflokkinn en starfađi ţétt međ vinstri meirihlutanum í borgarstjórn, enda skuldađi hann hvorki flokknum sínum né kjósendum sínum eitt né neitt fyrir ađ hafa komiđ honum ţangađ inn. Hann segist ađeins bundinn af sannfćringu sinni, gefur ekkert fyrir samherja og vini. Hins vegar var fćrđi hann fjöll úr stađ fyrir vinstri meirihlutann.

Hann er hinn dćmigerđi „góđi gći“, forystumađur „góđa fólksins“. Hefur aldrei gert nein mistök önnur er ţau en  ţau ađ hafa nćstum ţví orđiđ borgarstjóri og ţá hefđi hann ábyggilega gert fullt af mistökum sem hann sér obbođslega eftir. Ţetta segir Gísli vinur í óskaplega ómerkilegu og leiđinlegu viđtali í Fréttablađi helgarinnar. Af hverju í fjandanum var ég ađ lesa ţađ?

Gísli er sko frjálshyggjumađur en dassi af félagslegum áherslum. Nei, nei, hann segist sko alls ekki vera forćđishyggjumađur. Hann er nebbnilega ekki eins og allir hinir, hann er miklu, miklu betri, langbestur. Og ekki flögrar ađ honum ađ liggja á ţeirri skođun sinni. Hógvćrđin uppmáluđ.

Heiđbjartur og fagur hjólar hann um vesturbćinn, fer aldrei tilneyddur austur fyrir Skólavörđuholt. Hann gengur ekki á fjöll.

Ţađ er eitthvađ ferlega bilađ viđ ţann Íslending sem elskar malbik og steinsteypu.

Spái ţví ađ nćsta viđtal viđ Gísla Martein ... eitthvađson, birtist í Mogganum nema ţví ađeins ađ einhver krefjist lögbanns á viđtöl viđ manninn nćstu 20 árin. Og ţá verđa spurningarnar ţessar:

- Trúir ţú á einstaklinginn eđa strćtó?

- Hvort finnst ţér meira gaman ađ hjóla eđa labba? Ferđu oft í labbiferđir?

- Vaskar ţú upp eđa Vala? Elskiđ ţiđ ekki hvort annađ gasalega mikiđ?

- Greiđir ţú ţér daglega? Hefurđu fengiđ ţér strípur?

- Finnst ţér ekki slćmt ađ hafa aldrei gert vitleysur?

- Hvađ myndir ţú eiginlega gera ef ţú vćrir eins og viđ hin í einn dag?

- Mynduđ ţiđ Jésú ekki vera vinir ef hann vćri hér?


Bloggfćrslur 28. apríl 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband