Bloggfærslur mánaðarins, september 2015

Í sjónum í Nauthólsvík

GSS börnEfsta myndin birtist í Fréttablaðinu í gær og er af tveimur sonardætrum mínum sem eru greinilega miklu hraustari en afi gamli. Þarna vaða þær í kaldri Nauthólsvíkinni í Fossvogi ásamt tveimur vinkonum sínum. Þeim leiðist greinilega ekki.

Rakel er í svörtum bol og Unnur er með kúta. Vinkonurnar heita Hanna Katrín og Steinunn. 

Fyrir örfáum árum ... þegar ég var á svipuðum aldri og þessar fallegu stúlkur var Nauthólsvíkin fjölsótt. Þá lá fólk í sólbaði og krakkar busluðu í sjónum enda var sól og heitt alla daga sumarsins, aldrei rigning, alltaf gott veður (minnir mig). Og enginn heitur pottur.

Strákarnir úr Barmahlíðinni gengu alla leiðina yfir Öskjuhlíð og niður í Nauthólsvík með sundskýlu vafða inn í handklæði.

GSSb

Af og til hef ég pælt í að leggja stund á sjósund, sérstaklega þegar sólin skín í heiði og heitt er í veðri. Þessar hugsanir hafa fljótlega rjátlast af mér þegar ský dregur fyrir sölu og hitastigið lækkar.

Ég minnist margvíslegra svaðilfara í sjó. Síðast valt ég á kajak í Hvalfirði og ferðafélagar mínir hlógu hjartanlega. Eitt sinn brotlentum við þrír félagar á gúmmíbát í brimi við strönd Surtseyjar. Það var mikið ævintýri. Svo er það vaðstandið í köldum ám og ósum víða um land. Minnistætt er að hafa um miðnætti vaðið Hafnarósinn í Hornvík og ósinn í Atlavík á aðfalli.

GSS2bKaldast og verst er þó að vaða blátærar ár, jökulár eru barnaleikur í samanburðinum. Sumir geta vaðið án nokkurra vandræða. Ég á hins vegar í miklum vanda. Kuldinn leiðir upp í haus og gerir um leið út af við ófáar heilafrumur og drepur rætur höfuðhára. Svo rammt kvað að þessu á tímabili að það flögraði að mér að hætta þessu til að vernda þær örfáu sem eftir eru en svo gleymdi ég því og hélt áfram. Þess vegna er ég eins og ég er ...

GSS3Hermann vinur minn Valsson hefur hvatt mig til að koma með sér í sjósund. Segir það sé allra meina bót. Ég trúi því eins og nýju neti enda mikið fyrir reddingar og snöggsoðnar lausnir. Ég væri fyrir löngu byrjaður og búinn að fara fram og til baka yfir Ermasund ef sjórinn væri ekki svona djö... kaldur.


Hægri menn segja af sér, vinstri menn sitja áfram ...

Í viðtali á sjónvarpsstöðinni Hringbraut, síðastliðinn sunnudag, neitaði Björk Vilhelmsdóttir að samþykkt tillögunnar hefði verið „kveðjugjöf“ til hennar. Undirbúningur hefði staðið í eitt ár og verið til skoðunar hjá lögfræðingum borgarinnar og innkaupaskrifstofu. Samþykkt tillögunar hefði verið pólitísk stefnumörkun en útfærsla hefði verið eftir. Flokkssystkinin, Dagur B. og Björk, eru sammála um að útfærslan hafi verið eftir en ósammála um að samþykkt borgarstjórnar hafi verið „kveðjugjöf“, sem er ein helsta afsökunin fyrir klúðrinu.
Björk Vilhelmsdóttir upplýsti í viðtalinu að hún hefði ekki haft frumkvæði að tillögunni um að Reykjavíkurborg sniðgengi vörur frá Ísrael. [...]

Sem sagt: Í eitt ár var tillagan í undirbúningi en ekki vannst tími til að útfæra framkvæmd hennar. Enginn - ekki lögfræðingar borgarinnar, starfsmenn innkaupaskrifstofu, fulltrúar í innkauparáði, borgarfulltrúar meirihlutans eða aðrir sem unnu að málinu í að minnsta kosti tólf mánuði - sá neitt athugavert við að setja »viðskiptabann« á Ísrael.

Engar lagalegar flækjur eða lögfræðileg álitsefni og engar viðvörunarbjöllur hringdu. Og samkvæmt upplýsingum Bjarkar hafði 27 orða tillaga legið fyrir í nokkra mánuði áður en hún var samþykkt.

Þetta segir Óli Björn Kárason, varaþingmaður, í vel skrifaðri grein í Morgunblaði dagsins. Í henni tekur hann saman aðalatriðin í dæmalausu klúðurmáli borgarstjórnarmeirihlutans og flótta hans frá staðreyndum málsins. 

Engu er við þetta að bæta öðru en niðurlagsorðum greinarinnar, í þeim felst hinn nöturlegi sannleikur sem hefur tilvísun í stjórnmál undanfarinna missera (feitletrun er höfundar þessa pistils):

Það er skiljanlegt að krafa um afsögn borgarstjóra hljómi. Dagur B. Eggertsson verður að eiga þá ákvörðun við sig sjálfan og stuðningsmenn í borgarstjórn.

En líkurnar á að fallist verði á kröfu um afsögn eru hverfandi enda verður farið eftir óskráðri reglu:

Hægrimenn skulu segja af sér og víkja en vinstrimenn sitja áfram og læra af mistökum.

Svona er nú unnið í einkavinapólitíkinni.


Þrjár léttvægar skjálftahrinur á þremur stöðum


Frekar litlar líkur eru á því að örfáir skjálftar í Kötluöskjunni í Mýrdalsjökli séu undanfari einhverra alvarlegri tíðinda. Óróamælar Veðurstofunnar sýna afar lítil viðbrögð við skjálftunum.

SkjalftarHitt er merkilegra, að minnsta kosti fyrir leikmann, að á þremur stöðum hafa orðið jarðskjálftar yfir þrjú stig. 

  1. Rétt eftir miðnætti í gær, mánudag, urðu nokkrir skjálftar í norðanverðri Bárðarbunguöskjunni. Einn þeirra var 3,2 að stærð.
  2. Skammt frá Eldey urðu nokkrir skjálftar milli kl. 15 og sextán í gær. Einn var 3,5 að stærð.
  3. Í Kötluöskjunni urðu í nótt nokkrir skjálftar milli klukkan 2 og 3. Einn þeirra var 3,3 að stærð.

Svona gerist þetta nú stundum þó ég muni ekki eftir því að hafa séð marga skjálfta yhfir þrjú stig í einu á landinu á svipuðum tíma. Það er þó ábyggilega ekkert einsdæmi.

Sérfræðingar segja okkur leikumönnum að þegar gos sé í vændum munu skjálftar vera tíðari og stærri auk þess megi búast við að aðdragandinn sé skýr, til dæmis á óróamælum. Á þessum þremum áðurnefndu stöðum er þetta ekki að gerast.

Aftur á móti er vissara að taka það fram að ég hef ekki hundsvit á jarðfræði eða jarðskjálftum, sem engu að síður eru afar áhugaverð.

Í lokin er ekki úr vegi að segja hér frá draumspökum manni sem tíðum tjáir sig um náttúruhamfarir á Íslandi og ég vitna stundum í. Hann hafði samband við mig að fyrra bragði og sagði fátt muni gerast til áramóta nema ef vera skyldi að einhvers staðar færi nú að gjósa, stóriskjálfti kæmi eða það snjóaði. 


mbl.is Skjálftahrina við Kötlu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísraelinn sem hefur endaskipti á staðreyndum

Ýmis sagnfræðileg atriði eru þess eðlis, að aðalatriðin eru ljós og skýr og ofast afar langsótt að fara að leita að öðrum atriðum til að gera þau að aðalatriðum.

Með engu móti er hægt að halda því fram að Íslendingar hafi veitt Bobby Fisher hæli vegna velþóknar á Gyðingahatri hans.

Aðalatriðið var að hann var bannfærður á næsta langsóttan hátt fyrir það að hafa brotið gegn viðskiptabanni sem Bandaríkjamenn settu á vegna stríðs í fyrrum Júgóslavíu og hundeltur fyrir það. [...]

Jafn langsótt er það að bannfæra eigi flutning og lestur Passíusálma Hallgríms Péturssonar á Íslandi vegna þess að þeir séu einhver sérstök ádeila á Gyðinga sem þjóð.

Alveg eins mætti segja að í trúnni á Jesúm Krist felist sérstök tilbeiðsla á þeirri þjóð sem fæddi af sér þennan merkasta Gyðing allra tíma og færði honum og kristnum mönnum í hendur hið Gyðingalega trúarrit Biblíuna, það er Gamla testamentið,

Að ekki sé nú talað um trú kristinna manna á hina heilögu postula og fólkið í kringum Krist, sem allt var Gyðingar.

Þetta skrifar Ómar Ragnarsson á bloggsíðu sinni undir fyrirsögnin „Aukaatriði gerð að aðalatriðinu“ og honum mælist vel eins og svo oft áður. Tilefnið er grein í Israel national News, sem dr. Manfred Gerstenfeld ritar og frá er sagt í frétt á mbl.is, „Íslendingar ekkert lært af helförinni“.

Í greininni setur Gerstenfeld út á Passíusálma Hallgríms Péturssonar sem séu uppfull af „hatri og háðsglósum í garð gyðinga“ og að Bobby Ficher, skákmeistari, hafi fengið íslenskan ríkisborgararétt þrátt fyrir að hann hafi verið „gyðingahatari“.

Ómar svara manninum ágætlega og einnig Jón Valur Jensson sem segir í athugasemdum við pistil Ómars:

Ekkert Gyðingahatur er heldur til í sálmum Hallgríms Péturssonar, sem var ómengaður af Gyðingahatri Lúthers. Og það lýsir ekki Gyðingahatri að tala um Gyðinga sem "Júða", það merkir einfaldlega Gyðinga á öld Hallgríms, og við lesum ekki eitthvert nazistískt hatur eftir á inn í orðfæri Hallgríms -- þ.e.a.s. nema við séum sjálfir ruglaðir. Hallgrímur er maður kærleikans, ekki haturs, ólíkt Gyðingahöturum síðari tíma (múslimskum og heiðnum).

Að æðstu prestar Gyðinga, Farísear og fræðimenn hafi borið ábyrgð eins og rómverskir ráðamenn á krossfestingu Krists og ofsókn kristinna manna á 1. öld, felur engan veginn í sér, að afkomendur Gyðinga eigi hlutdeild í þeirri sekt.

Foreldrar mínur voru kristnir og ólu börn sín upp í þeirri trú. Þrátt fyrir að hafa lesið og lært Passíusálmana í æsku get ég fullvissað alla um að ég er ekki haldinn neinum rasisma né heldur hatast ég við gyðinga eða Ísraela og raunar engra ríkja, þjóða eða hópa sem ég þekki til.

Þó veit ég það sem Jón Valur segir, að æðstu prestar Gyðinga, farísear og rómverskir ráðmenn báru ábyrgð á krossfesingu Krists (læt hér vera rökræður um hvort sögur af krossfestingunni kunni að vera rangar). Megi ekki nefna þessa staðreynd þá er illt í ári fyrir frjálsri hugsun. 

Núlifandi Tyrkir bera ekki ábyrgð á þjóðarmorði á Kúrdum á síðustu öld, né heldur er hægt að draga Bandaríkjamenn til ábyrgðar fyrir þrælahald á þarsíðustu öld eða þá sem nú búa þar sem er Alsír fyrir svokallað „Tyrkjarán“ á Íslandi og víðar. Ekki heldur er með nokkru móti hægt að berja á Dönum fyrir maðkað mjöl eða draga Þjóðverja til ábyrgðar vegna tveggja heimsstyrjalda.

Staðreyndir eru einfaldlega staðreyndir, framhjá þeim skautar dr. Manfred Gerstenfeld. Misskilningur hans byggist á því að orðin „gyðingur“ og „júði“ tengd trúarlegum atburðum kristinna manna séu merki um and-semitisma. Þetta er auðvitað heimskuleg nálgun og ekkert annað en ofstæki og skortur á skilningi og umburðarlyndi gagnvart kristinni trú og menningu. Auðvitað er svona ekkert annað en til skammar fyrir mann sem telur sig menntaðann.

Í raun og veru hefur Ómar Ragnarsson hárrétt fyrir sér í ofangreindri tilvitnun:

Ýmis sagnfræðileg atriði eru þess eðlis, að aðalatriðin eru ljós og skýr og ofast afar langsótt að fara að leita að öðrum atriðum til að gera þau að aðalatriðum.

 


Styttri vinnutími og frímínútur eru alltaf til góða

Svíar hafa gert tilraunir með styttri vinnudag áður en oftar en ekki hafa þær tilraunir verið gerðar í einkageiranum, en ekki þeim opinbera. Sex klukkustunda vinnudagur var tekinn upp hjá Toyota í Gautaborg fyrir þrettán árum og þótti það gefa svo góða raun að forsvarsmenn fyrirtækisins hafa ekki einu sinni íhugað að lengja vinnudaginn aftur.

Ofangreind tilvitnun er í dv.is. Vinnudagurinn er skrýtinn fyrir marga. Sumir hafa ótrúlega mikið að gera allar átta klukkustundir dagsins en aðrir minna. Ábyrgð fólks er enda mismikil og fer eftir verkefnunum.

Stundum hefur flögrað að mér að vinnutíminn minn ætti að vera þrjár klukkustundir. Ég sit fyrir framan tölvu daginn út og inn og á tíðum klárar maður verkefni dagsins á örskömmum tíma. Á eftir tekur við bölvað hangs og kjaftæði. Betra væri að fara hreinlega heim heldur en að sitja við það sem ekkert er.

Margir rithöfundar eru á þessari skoðun. Þegar þeir eru komnir á skrið er sagt að daglegt hámark sé að skrifa að meðaltali fjórar blaðsíður á dag, hugsanlega á þremur klukkustundum. Eftir það þarf heilinn hvíld frá skrifum og annað tekur við.

Átta klukkustunda vinnudagur er krefjandi og jafnvel slítandi. Þess vegna hafa til dæmsi mörg tölvufyrirtæki byggt upp afþreyingu fyrir starfsmenn sína. Nefna má Apple og Google og þar eru jafnvel hvíldarherbergi út um allt. Stjórnendur gera sér grein fyrir því að hugurinn þarf hvíld, frímínútur, eins og sagt er í skólanum. Eftir tiltölulega stutta hvíld verður hugurinn ótrúlega fljótt skarpur á ný.

Ég man að faðir minn kom oft heim í hádeginu, fékk að borða og lagðist á dívaninn, og dottaði yfir fréttunum. Eftir það var hann ferskur og hress og ábyggilega miklu skárri í vinnunni en ella. Þetta var lenska hér á árum áður ekki síst á úti á landi. Klukkutíma matarhlé var víðast í frystihúsum í litlum bæjarfélögum úti á landi og flestir gengu heim, borðuðu og fengu sér lúr.

Í stjórnun er til hugtakið „að brenna út“. Þá er átt við þann vegg sem margir lenda á eftir langa og hvíldarlitla vinnu mánuðum eða jafnvel árum saman. Skyndilega er sem ofurþreyta leggst á fólk, það verður kærulaust og hugmyndasnautt. Margir hafa kynnst þessu.

Oft tekur langan tíma að ná sér eftir þannig ástand og því er leitast við að komast hjá því. Það er einungis hægt með því að gefa huganum stutta og langa hvíld frá verkefnum dagsins. Að öðrum kosti byggist upp þreyta, stress og því fylgja ýmsir líkamlegir kvillar eins og vöðvabólga.

Sex stunda vinnudagur er ábygglega mjög góður. Þegar ég var við nám í Ósló á níunda áratug síðustu aldara var mikið rætt í fjölmiðlum um styttri vinnudag. Þá var áhyggjuefnið að þar sem það hafði verið reynt breyttustu skyndilega aðstæður. Óvænt tengslu fundust á milli heimilisofbeldis og skemmri vinnutíma. Ekki er lengra síðan en að fólk á miðjum aldri, sérstaklega karlmenn, höfðu engin áhugamál, brauðstritið var þeim allt. Þegar heim var komið um miðjan dag kunnu hjón ekki að tala saman eða eyða tímanum saman og sambandið endaði í tómri vitleysu.

Sem betur fer eru nú komnar nýjar kynslóðir sem hafa ógrynni áhugamála og góðar aðstæður til að nýta sér þau. Þar af leiðandi er nú lítil hætta á að karlar hafi ekkert þarfara að gera eftir vinnu en að berja konurnar sínar og jafnvel börn, eins og það var einu sinni svo ónærfærnislega orðað.


Borgarstjórn tekur yfir utanríkismál landsins

Nú eru skuldir borgarinnar orðnar áhyggjuefni og það þótt allir gjaldstofnar hafi verið keyrðir upp í topp. Nýlega kom í ljós að ringulreið ríkir í daglegri fjármálastjórn borgarinnar. Í stað þess að snúa sér að því forgangsverkefni þykjast borgaryfirvöld þurfa að taka yfir utanríkismál landsins og hafa þau til að nesta einn af pólitískum samherjum sínum sem flyst á nýjar slóðir.

Úr Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins þessa helgina. Mörgum finnst þarna komist réttilega að orði.

Fjárhagsleg staða Reykjavíkurborgar var áhyggjuefni. hafa enn fleiri áhyggjur af því að völdin hafi vaxið núverandi meirihluta til höfuðs eða hann hafi einfaldlega misst sjónar á forgangsatriðum í rekstri sveitarfélags.

Ljóst má þó vera að dómgreindarleysi meirihlutans er mikið ef hann ætlar sér að taka yfir utanríkismál landsins, þó ekki nema til þess að fráfarandi borgarfulltrúi fái fararheill til útlands. Þetta angar af spillingu.


Stórkostleg pólitísk mistök meirihlutans í borgarstjórn

Orð standa, því miður er það svo. Hversu mikið sem maður sér eftir orðum sínum þá eru þau þegar sögð og verða aldrei tekin aftur. Hins vegar er hægt að bera í bætiflákann, afsaka orð sín ...

Hvers vegna vill borgarstjóri nú draga til baka tillögu sem meirihluti borgarstjórnar samþykkti fyrir skömmu um sniðgöngu á vörum frá Ísrael?

Gæti það verið vegna einhverra eftirfarandi atriða:

  1. Tillagan var vanhugsuð?
  2. Tillagan var rangt orðuð?
  3. Tillagan var fljótfærnislega unnin?
  4. Tillagan hafði allt aðrar og verri afleiðingarnar en búist var við?
  5. Tillagan veldur öðrum sveitarfélögum skaða?
  6. Tillagan er brot á íslenskum lögum?
  7. Tillaga stefnir íslenskum viðskiptum í mikla hættu?
  8. Tillagan hefur valdið tjóni á íslenskum útflutningi og ferðaþjónustu?
  9. Tillagan sannaði dómgreindarleysi borgarstjóra og annarra borgarfulltrúa meirihlutans?
  10. Tillagan var heimskuleg?

Hvert eitt af ofangreindum atriðum ætti að vera nóg sem stór ávirðing á borgarstjórnarmeirihlutann. Nú er hins vegar ljóst að öll tíu atriðin skipta máli og þess vegna hefur borgarstjórinn játað á sig og félaga sína stórkostleg pólitísk mistök.

Væri borgarstjóri í öðrum flokki hefði verið kallað á afsögn hans og raunar meirihlutans alls. 

Borgarstjóra til afsökunar er sú einfalda staðreynd að öll nemendafélög geta gert mistök sem fullþroska fólk gerir ekki.


Níu umhugsunarefni Styrmis Gunnarssonar

Styrmir Gunnarsson leggur línurnar fyrir landsfund Sjálfstæðisflokksins í október næstkomandi. Í dálki sínum í blaði dagsins nefnir hann níu atriði sem flokkurinn þurfi að taka á. 

  1. Aðildarumsóknin að ESB verði afturkölluð með óyggjandi hætti fyrir lok þessa kjörtímabils.
  2. Þjóðaratkvæðagreiðslur verði ráðandi við meginákvarðanir í þróun samfélagsins sem og í sveitarfélögum.
  3. Í stjórnarskrá verði ákvæði um þjóðareign á náttúruauðlindum; nytjastofna á Íslandsmiðum, vatnsafl, auðlindir á eða undir hafsbotni, fjarskipti og umhverfisgæði.
  4. Útfærsla á stefnu flokksins varðandi norðurslóðir í sambandi við ríki sem hagsmuni eiga þar að gæta.
  5. Umhverfis- og náttúruvernd; Friða á hálendi Íslands og aðrar perlur óbyggðanna.
  6. Aðgengi alla að menningararfinum og átak til málhreinsunar, sérstaklega vegna mengunar úr ensku.
  7. Sjálfstæðisflokkurinn var ekki stofnaður til að verja hagsmuni einkarekinna einokunarfyrirtækja, breyta þarf lögum gegn einokun. Eigendur lífeyrissjóða kjósi sjálfir stjórn sjóðanna í beinni kosningu.
  8. Í velferðarmálum verði ráðist að rót vandans, það er á æskuárum einstaklingsins.
  9. Réttlát skipting auðs.

Margt má segja um þessar hugmyndir Styrmis. Í heild má segja að þær séu skynsamlegar og rík ástæða til að ræða þær allar. 

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins er stærsti fundur stjórnmálaflokks á Íslandi og þar er mikil lýðræðisleg gerjun þvert á það sem andstæðingar flokksins og illa upplýst fólk heldur.

Stundum virðist þó sem þessi stóri flokkur hafi ekki fylgst nægilega vel með þjóðfélagsbreytingum en þær hafa orðið miklar á undanförnum áratugum. Til dæmis hefur mikil aukning orðið í útiveru og ferðalögum hér innanlands. Yngra fólk lítur allt öðrum augum á auðlindir landsins, náttúru þess og umhverfi en fólk gerði fyrir á síðustu öld og mikil hugarfarsbreyting hefur einnig orðið hjá eldra fólki. Þess vegna er níunda atriði Styrmis algjörlega réttlætanlegt í umræðunni.

Auðvitað vilja Sjálfstæðismenn gæta að frelsi einstaklingins, en það er ekki einskorðað við fyrirtækjarekstur. Frelsið er enn meira og stærra. Við eigum að leggjast gegn einokunartilburðum fyrirtækja. Við þurfum að gæta að því að fjármálastofnanir vaði ekki yfir viðskiptavini sína og sem og aðra landsmenn. Margir halda því fram að aðgangur sjávarútvegsfyrirtækja sé miklu minni en réttlætanlegt sé. Þessi atriði eru felast í hugmyndum Styrmis.

Grundvöllur þjóðfélagsins er einfaldlega sá að allir hafi atvinnu, afli fjár til að eiga fyrir mat, húsnæði og öðrum þeim þörfum sem þeir telja sig hafa. Allt annað kemur í kjölfarið og verði brestur á þessu gengur þjóðfélagsgerðin ekki upp, allir tapa.


Nægilegs fés hefur verið safnað, segir Mogginn

Nægi­legs fés hef­ur verið safnað til að kaupa Concor­de-þotu með það að mark­miði að koma henni aft­ur í loftið fyr­ir árið 2019, seg­ir hóp­ur breskra áhuga­manna um vél­ina

Svona er hroðvirknin stundum í fréttaskrifum á mbl.is. Í ofanálag er ekki einu sinni settur punktur aftan við málsgreinina. 

Hér er annað gullkorn:

Hóp­ur­inn ráðger­ir einnig að hafa aðra Concor­de-þotu til sýn­ing­ar í miðborg Lund­úna.

Og svo eitt enn:

Hann seg­ir þau sína að fólki sé annt um Concor­de og vilji sjá þær í háloft­un­um á ný.

Líklega er óþarfi að láta þess getið að fréttin er að auki illa skrifuð, þýðingin hrá og augsýnilega gerð í fljótfærni.

Svona fréttamennska og skrif er auðvitað til skammar fyrir hið virðulega Morgunblað.


mbl.is Concorde í loftið 2019?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslenskt skattfé var ekki notað til að greiða vanskil óreiðumanna

Fyrirsagnahausar og annað fólk sem er frekar ill að sér veður nú upp á dekk og segir: Já, vissi ég ekki. Nú er verið að borga Icesave skuldina sem við áttum að vera laus við.

Staðreyndin er hins vegar þessi:

  1. Þjóðin hafnaði kröfu vinstri stjórnar Jóhönnu og Steingríms þess efnis að skattfé almennings væri notað til að greiða skuldir einkaaðila. Munum að Davíð Oddsson, fyrrum Seðlabankastjóri sagði að þjóðin ætti ekki að ábyrgjst vanskilaskuldir óreiðumanna. Og hún gerði það ekki. Þjóðin rassskellti svo vinstri stjórnina í næstu þingkosningum á eftir.
  2. Icesave skuldin var greitt með eignum gamla Landsbankans og Tryggingasjóði innistæðueigenda, peningar sem komu ekki af skattfé þjóðarinnar.
  3. Fyrir forgöngu forseta Íslands hafnaði þjóðin því að taka að sér vaxtaskuldir vegna Icesave samninganna, mörg hundruð milljarða, líklega hafa vextirnir einir verið nálægt 400 milljörðum króna að núvirði.

Kratar og vinstri aðrir menn skildu ekki eðli skulda gömlu bankanna og hótuðu þjóðinni þar af leiðandi öllu illu. Muna ekki einhverjir eftir „Kúbu norðursins“, orðalag sem Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra í vinstri stjórninni lét hafa eftir sér í hræðsluáróðri vinstri manna með Icesave samningunum. Gylfi þess er nú prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands og líst án efa vel á stöðu efnahagsmála á Íslandi um þessar mundir.

Þeim er vorkunn vinstri mönnum. Í fyrsta sinn er hrein vinstri stjórn tókst að tóra í fjögur ár er arfleifðin Icesave samningar sem þjóðin kaus gegn. 


mbl.is Samið um lokauppgjör Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband