Bloggfærslur mánaðarins, október 2008

Þorskar á þurru landi

Þorskstofninn hefur ekkert aukist enda stendur hann hvorki í beinu né öfugu hlutfalli við efnahagsvanda þjóðarinnar.

Kröfur sem nú eru uppi um aukinn kvóta til þess að þorskinum fjölgi helst á þurru landi.


mbl.is Aukinn þorskkvóti ekki útilokaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gætum að mannréttindum

Svona vinnur alþingi götunnar. Lýðurinn heimtar blóð. Ótrúlegt að menn gleymi að hver og einn einstaklingur á margvíslegan rétt sem tryggður í lögum. Það er einfaldlega ekki nóg að orga og stappa niður fótunum eins og fjölmargir bloggarar gera í athugasemdum sínum við þessa frétt. Almennum mannréttindum verður ekki breytt vegna þess eins að sumir eigi meiri pening en aðrir eða þeir hafi auðgast í bönkum

Menn þurfa ekki að vera löglærðir til að gera sér grein fyrir því að eignir manna má ekki taka af þeim nema að gengnum dómi, og sá dómur verður eðlilega að eiga sér stoð í lögum.

Hvernig á svo alþingismaður að bregaðst við spurningum fréttamanns um kyrrsetningu á eignum auðmanna. Lýðskrumarinn myndi umsvifalaust heimta neyðarlög um málið og helst að viðkomandi verði hengdur upp í næsta ljósastaur. Birgir gerir rétt í því að taka ekki djúpt í arinni í svari sínu.

Birgir Ármannsson ber eins og aðrir alþingismenn ábyrgð á stöðu mál í íslenskum efnahag, hann á auk þess hlut að ríkisstjórnarsamstarfinu. Ábyrgð ríkisstjórnarinnar er mikil. Það breytir samt á engan máta aðstæðum. Við verðum að fara eftir lögum og lögin verða að vera sanngjörn og þau eiga að taka eins á öllum. Allt annað er óréttlæti.


mbl.is Vill ekki frysta eignir auðmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pressa líka á Gordon Brown ...

Um daginn var Steingrímur að kvarta um að hann fengi ekki að vera með í viðreisn stjórnarflokkanna. Auðvitað er það sárt að vera skilinn útundan. Einn og óstuddum tókst honum að snúa Norðmönnum til liðs við okkur:

Hann segir skrif hans í Aftenposten á dögunum hafa sett pressu á að Norðmenn tæki frumkvæði í því að bjóða fram aðstoð sína með þessum hætti 

 Gæti hann ekki sett líka sett pressu á fjandvin okkar Gordon Brown, vísað honum veginn eins og Norðmönnum. Skítt að við fengum ekki sætið í Öryggisráðinu. Sigfússon hefði verið tilvalinn í það og þr hefði hann sett pressu á alla vondu kallana í heiminum.


mbl.is Eins mikið samflot með Norðmönnum og hægt er
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Látum ekki stjórnast af reiði og heift

Ótal dæmi finnast um hreinsanir og sem áttu sér stað í reiði. Slík „tiltekt" er síst til eftirbreytni. Hún byggist á því að allir, sem hópnum dettur í hug að saka um misferli og mistök, séu sekir og verði að sanna sakleysi sitt. Þannig virkar dómstóll götunnar. 

Þetta segir Kolbrún Bergþórsdóttir í pistli sínum í Mogganum í morgun. Hún fjallar um æsing fólks út í Davíð Oddsson, þetta fólk sem er sálarlega þjakað af tilvist mannsins og nær ekki svefni vegna hans. Og Kolbrún varar mjög ákveðið við því að menn láti reiðina stjórna umræðunni:

Umræðan um mistök einstakra manna er einmitt á þessum nótum. Það er einfaldlega lítið vit í henni af því að þeir sem standa fyrir henni láta stjórnast af reiði og heift. Þeir byrja bara einhvers staðar og halda svo áfram að draga sökudólga upp á svið og í hamaganginum hafa þeir síst áhyggjur af því þótt einhverjir saklausir verði ranglega dæmdir sekir.

Þetta er skynsamlega skrifað og á auðvitað við í fleiri tilvikum en þessu. Aðalatriðið er að við látum stjórnast af viti en ekki reiði, skiptir engu hvað um er að ræða og hver sem í hlut á. Vissulega má maður vera reiður, bálreiður yfir því hvernig komið er í efnahagsmálum þjóðarinnar en æsingurinn má aldrei bera skynsemina ofurliði. Þá er ansi skammt í aðstæður sem þekktar eru í sögunni; nornaveiðarn, gyðingaofsóknir, rasisma ...

 


Leitað til fleiri aðila en Seðlabankans?

Vantar ekki í þessa frétt að ríkisstjórnin hafi leitað álits frá fleirum en Seðlabankanum um lán frá IMF? Samtökum atvinnulífsins, Alþýðusambandinu og fleiri hagsmunaaðilum? Er þetta ekki sá breiði grundvöllur sem ríkisstjórnin vinnur á við lausn fjármagnskreppunnar?

Í ríkisstjórninni eiga sæti tveir flokkar. Annar er ekkert sérlega kátur með stjórn Seðlabankans en hefur látið kyrrt liggja, að minnsta kosti opinberlega. Myndu menn ekki telja það undarlegt að sá flokkur myndi sætta sig við að „Davíð hefði neitunarvald“ í þessu máli? Nei, hér er ekki um það að ræða að Seðlabankinn sé neitt annað en umsagnaraðili, hugsanlega ásamt fleirum. Fjölmargir sofa illa vegna Davíðs og nota því hvert tækifæri til að persónugera í honum allt sem viðkemur Seðlabankanum rétt eins og sést á ótal bloggfærslum um þessa frétt.


mbl.is Sátt um IMF-lán í Seðlabanka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Knýjandi þörf á nýju nafni á bankann

Eitt af þeim fyrstu málum sem nýjir stjórnendur Kaupþings þurfa að huga að er að skipta um nafn á fyrirtækinu. Bankinn er eins og aðrir íslenskir bankar með afar slæmt orðspor. Landsbankinn er á breskum lista yfir hryðjuverkasamtök og ekki þarf mikið hugarflug til að ímynda sér að hið sama gildi um aðra banka.

Eflaust kunna ýmsir að segja að nafnið hljóti að vera gott og vissulega er ýmislegt til í því. Sama má líklega segja um hakakrossinn, hann hefur dugað fyrir Eimskipafélagið en einhvern veginn held ég að hann hafi nú frekar fælt frá þó svo að fyrri stjórnendur félagsins hafi haft hina fornu merkingu Þórshamarsins í huga.

Fleira þurfa hinir hinir stjórnendur hinna nýju banka að hafa í huga en varla er efst í huga þeirra markaðssókn, miklu frekar að halda í horfinu eins ef það er mögulega hægt. Menn mega þó ekki vanrækja að gera skýr og greinagóð skil á milli þess sem var og þess sem er og verður. Þess vegna er knýjandi þörf á nafnbreytingu.


mbl.is Hreiðar Már yfirgefur Kaupþing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frelsið og við handhafar þess

Ég hef vissulega ákveðnar skoðanir í þjóðfélagsmálum. Finnst þær vera frekar hógværar, tel mig geta hlustað á andstæð rök og oftar en ekki verð ég að breyta um skoðun. 

Allt orkar tvímælis þá gert er. Tökum dæmi: 

  • Til að ég geti eldað mat þá þarf ég meðal annars hníf. Hníf er hægt að misnota, notkun hans getur verið banvæn.
  • Þegar skyggja fer kveiki ég á kertum. Eldur er hættulegur, hann getur eyðilagt eigur manna og valdið dauða.
  • Mér finnst nauðsynlegt að eiga bíl. Bíll er hættulegt tæki eins og dæmin sanna.

 Náttúran er undarlega, í henni finnst hvergi hvítur eða svartur litur, ekki heldur bein lína eða spegilsléttur vantsflötur. Sama má segja með okkur mennina, enginn skrifar nafn sitt ávallt eins, gengasamsetning fólks er mismundandi. Þarfir fólks eru ólíkar, þarfir eru sjaldan hinar sömu í dag og þær voru í gær.

Jú allt er breytingum undirorpið. Við lögleiðum frelsi á sem flestum sviðum. Hægt er að misnota frelsið, það sem einum er frelsi er öðrum helsi. Tökum dæmi:  

  • Aðkoma bankana að íbúðalánum hækkaði fasteignaverð. Þúsundir endurfjármögnuðu íbúðalán sín og notuðu stóran hluta lánanna í einkaneyslu, keypti hlutabréf eða fasteignir. 
  • Við einkavæddum bankana. Það er ekki ástæðan fyrir því að ástandið í efnahagsmálum þjóðarinnar er eins og það er.
  • Ég get valið. Ég keypti bíl með myntkörfuláni. Sú staðreynd að ég vil eiga bíl er ekki ástæðan fyrir því að lánið hefur hækkað.
  • Þúsundir fólks endurfjármögnuðu íbúðarkaup sín, notuðu mismuninn til að koma sér betur fyrir, auka neyslu sína eða eitthvað allt annað.  

Við verður að greina á milli orsaka og afleiðinga. Við getum ekki bæðu sleppt og haldið. Hversu langt eigum við að ganga í því að takmarka frelsið. Banna eða leyfa með takmörkunum? 

  • Bílaumferð?
  • Skæri?
  • Einkaverslun?
  • Innflutning?
  • Fólksflutning milli landshluta?
  • Ferðalög til útlanda? 

 Við sem kvörtum nú og kveinum undan ástandinu þurfum að gera okkur grein fyrir því hvort staða mála hafi verið svo vond að við þurfum að afsala okkur því frelsi sem allar vestrænar þjóðir hafa tileinkað sér. Við þurfum að átta okkur á því að þegar upp er staðið þá er „hjarðeðlið“ talsvert ríkjandi þáttur í tilverunni. Jafnframt þurfum við að skilja að ávallt verður einhver hundraðshluti fólks sem fer aðrar leiðir, hlunnfer aðra, stelur og svíkur. Svo gerast óhöppin. Þeir eru nefnilega líka til sem lifa lífi sínu á grandvaran hátt en verða af einhverjum ástæðum til þess að einhver skaðast. Augnabliks óaðgæsla í umferðinni veldur eignatjóni, slysi eða jafnvel dauða. Einbreið brú getur verið stórhættuleg en það er ekki þar með sagt að sá sem hannaði hana hafi haft eitthvað illt í hyggju. Við getum ekki gagnrýnt brúarhönnuðinn fyrir að lifa í vellystingum meðan óheppinn vegfarandi berst fyrir lífi sínu á gjörgæslu. Sama er með húseigandann sem gætti þess ekki að bera salt á stéttina fyrir framan húsið sitt eða verslunareigandann sem seldi mér kjúklinginn með salmonellunni.

Grundvallarspurningin er þessi: Var vitlaust gefið eða spiluðum við rangt úr því sem við fengum? Með öðrum orðum er FRELSIÐ skaðvaldurinn eða við sem misnotuðum það. Hnífurinn er vissulega morðvopnið, bíllinn olli eignatjóni og svo framvegis. Veldur sá er á heldur.

Gætum að því sem við segjum og gerum. Ég er til dæmis á þeirri skoðun að hinir svokölluðu útrásarvíkingar hafi viljað þjóð sinni vel, en það var ekki þeim að kenna að ástand heimsmála er með þeim hætti sem núlifandi kynslóðir þekkja ekki af eigin raun. Kennum þeim ekki alfarið um stöðu mála þó vissulega megi þeir líta í eigin barm eins og við hin.

En fyrir alla muni ekki kenna mér um þó göt séu á röksemdafærslu minni. Lesandinn hlýtur að skilja hvað ég á við. Og honum til upplýsingar þá tapaði ég engu vegna þjóðnýtingar bankanna. Ég er bara ósköp venjulegur meðaljón - með ákveðnar skoðanir í þjóðmálum.   


Á pilsfaldi spákonunnar

dsc_0120_702901.jpgHaustið er komið, því verður víst ekki á móti mælt. Treglega verð ég að viðurkenna það. Jörð var nefnilega grá er ég gekk út í morgun og upp með hlíðum Spákonufells, um pislfald spákonunnar, ef svo má segja. Snjórinn var þó ekki mikill, eiginlega ekkert nema ... grámi. Oft veit snjór á haust, jafnvel veturkomu.

Dagurinn var fallegur. Gola af norðaustan og inn í Húnaflóa sigldu af og til éljaklakkar. Þeir komu fyrir Skaga og liðu yfir miðjan Flóann og kannski inn í Hrútafjörð eða yfir á Strandir. Dularfullir skýjabakkar sem sigldu móti skammdegissól, svo hægt að varla mátti greina. Skagafjöllin voru greinilega fyrirstaða fyrir vindinn og hann þurfti að krækja framhjá þeim. Samt sáldraðist mjöllin stundum niður hlémegin við Spákonufell þar sem ég kjagaði uppávið.

Skýjafarið lék sér með sólargeislanna. Stundum var skjannabjart á efri hluta fjallsins, Spákonufellsborgina, og þess á milli var sem hún nær myrkvaðist.

Ég gekk ekki alla leiðina upp. Nennti því ekki í þetta sinn. Lék mér að því að taka myndir og njóta kuldans. Já, það er stundum alvega einstaklega gott að vera úti í frosti. Engum verður meint af því, aðal atriðið er að klæða sig vel og hreyfa sig. Ég tók myndir, þóttist taka góðar myndir, en þær er ekki eins góðar og ég hélt, bara svona miðlungs. 


Ráðinn forstjóri með „rangar“ stjórnmálaskoðanir

Fólk þarf að hugsa málin áður en það sest niður og skrifar. Annars er hætt við að hlutirnir misskiljist illilega. Einn bloggarinn setur út það á ráðningu forstjóra Sjúkratryggingastofnunar að sá sem  ráðinn var sé ekki með „rétta“ pólitíska skoðun.

Hversu stutt er ekki í öfgarnar? Hvernig eigum við aðgeta haldið uppi heilbrigðu þjóðfélagi ef útiloka á menn frá opinberum stöðum hafi þeir óæskilegar skoðanir.

Í nær tíu ár hefur Steingrímur Ari Arason  verið framkvæmdastjóri LÍN og staðið sig þar afar vel. Þeir sem til þekkja vita að þar fer vammlaus maður sem tekur starf sitt alvarlega - er um of nákvæmur að margra mati. Steingrímur var vissulega í Vöku í Háskólanum á námsárum sínum, hann hefur starfað innan Sjálfstæðisflokksins en hvort hann sé frjálshyggjumaður veit ég ekki. Skipta þessar staðreyndir einhverju máli við ráðningu hans.

Annar maður er Friðrik Þór Guðmundsson. Hann lætur sér sæma að draga þá ályktun að með ráðningu Steingríms Ara geti ekker annað „blasað við en aukin frjálshyggjuvæðing velferðarþjónustunnar“. Með öðrum orðum sagt, Steingrímur Ari sé þátttakandi í einhverju samsæri. Friðrik er greinilega fastur í einhverri óskiljanlegri samsæriskenningu.

Út af fyrir sig er í lagi að menn stundi „steypuvinnu“ eins og Friðrik virðist gera. Hins vegar finnst mér það mjög alvarlegt mál ef hann telur að ekki megi ráða mann í starf vegna stjórnmálaskoðana hans.


Tek ofan fyrir forsætisráðherra

Fengi lýðurinn sínu fram þá yrðu fjöldi manna hengdir í hæsta gálga, kannski ekki bókstaflega heldur er mannorðið rifið af viðkomandi. Sem betur fer ætla stjórnvöld að standa öðru vísi að málum. Af yfirvegun og skynsemi verður farið ofan í málin og niðurstaða fengin.

Já, já, segir lýðurinn, kvartandi yfir því að fá ekki að sjá blóðið renna. Þá verður enginn hengdur. Samtryggingakerfið sér fyrir því.

Gott og blessa,ð segi ég. Það er betra að fara rólega í málin, forðast réttarmorð.

Ríkisstjórnin ætlar að halda rétt á spilunum í þetta sinn og það er óhætt að taka ofan fyrir forsætisráðherra og raunar líka viðskiptaráðherra.


mbl.is Ekki persónugera viðfangsefnin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband