Er Atli búinn að afla upplýsinga hjá Steingrími?

Af hverju er Atli Gíslason með þessa eilífu sýndarmennsku. Honum ættu að vera hæg heimatökin. Flokksbróðir hans, sjálfur formaður Vinstri grænna og fjármálaráðherra Íslands ætti að geta lagt á borð fyrir Atla. Þeim manni hljóta að vera allir skilmálarnir ljósir, sé á annað borð um einhverja skilmála að ræða.

Það dugar ekki Atla að vera með einhverjar sjónhverfingar og reyna að beina athygli fólks að Alþjóða gjaldeyrissjóðnum.

Athyglin og raunar spjót almennings eiga að beinast að ríkisstjórninni, fjármálaráðherranum ekki síður en forsætisráðherranum.

Atli, varstu búinn að tala við Steingrím um „alla skilmála og öll skilyrði fyrir því að Ísland fái lán frá sjóðnum“?


mbl.is Vill að AGS leggi spilin á borðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Magnússon

Þú misskilur þetta kæri vinur. Þetta er ein birtingarmynd innanflokksátaka í Vinstri grænum. Atli fer þarna af fullu afli í formanninn.

Jón Magnússon, 26.7.2009 kl. 17:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband